fbpx
Föstudagur 27.júní 2025
Pressan

Einn hættulegasti maður Bandaríkjanna er látinn

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 4. júní 2019 06:00

Thomas Silverstein.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nýlega var Thomas Silverstein, 67 ára, lagður inn á sjúkrahús þar sem hann átti að gangast undir hjartaaðgerð. Hann lést í aðgerðinni sem var gerð þann 11. maí síðastliðinn. Silverstein var talinn einn hættulegasti maður Bandaríkjanna. Þegar hann var lagður inn á sjúkrahús var það í fyrsta sinn síðan 1983 sem hann fékk að fara úr einangrun í öryggisfangelsi í Florence í Colorado.

Silverstein var mjög ofbeldisfullur rasisti og var félagi í „Aríska bræðralaginu“ en það eru samtök (glæpasamtök) hvítra kynþáttahatara.

Hann sat í einangrun frá 1983 eftir að hafa myrt tvo samfanga sína og fangavörð. Enginn fangi hefur setið lengur í einangrun í Bandaríkjunum en hann. Hann var talinn einn hættulegasti fangi sögunnar og samkvæmt frétt New York Times var hann ein aðalástæðan fyrir að byrjað var að reisa öryggisfangelsi þar sem fangarnir dvelja án þess að komast í snertingu við annað fólk.

Silverstein fæddist í Kaliforníu 1952. Hann var lítill og veikburða fram eftir aldri. Önnur börn stríddu honum því þau töldu hann vera gyðing en það var hann ekki. Afbrotaferill hans hófst þegar hann var 14 ára en þá stal hann bíl og lenti í slagsmálum við lögreglumann. Í kjölfarið endaði hann í ungmennafangelsi. Þegar hann losnaði þaðan byrjaði hann að nota heróín og eftir það lá leiðin hratt niður á við. Hann byrjað að stela til að fjármagna fíkniefnaneyslu sína.

Silverstein.

Hann var þrisvar dæmdur í fangelsi fyrir vopnuð rán en þau framdi hann með föður sínum og frænda. Í fangelsinu komst hann í tengsl við „Aríska bræðralagið“ en það eru mjög virk samtök enn þann dag í dag. Meðlimir þess standa á bak við um 18 prósent allra morða í bandarískum fangelsum þrátt fyrir að aðeins 0,1 prósent fanga séu í samtökunum.

Silverstein var dæmdur fyrir morð 1980 en þá myrti hann samfanga sinn Danny Atwell því hann neitaði að smygla heróíni inn í fangelsið. Silverstein neitaði að hafa myrt hann en var samt sem áður sakfelldur. Fimm árum síðar var hann hins vegar sýknaður af morðinu eftir að fram hafði komið að margir fanganna, sem báru vitni í málinu, höfðu logið. En það var um seinan. Í kjölfar sýknunnar var Silverstein fluttur í öryggisfangelsi í Illinois og þar framdi hann morð ári síðar. Þá myrti hann meðfanga sem var félagi í öðrum glæpasamtökum, D.C. Blacks. Í kjölfarið skipulagði leiðtogi D.C. Blacks, Raymond ´Cadillac´ Smith hefndaraðgerð. En Silverstein og samverkamaður hans höfðu yfirhöndina í henni og stungu Cadillac 67 stungum með heimagerðu vopni. Silverstein játaði aldrei morðin tvö.

Silverstein á yngri árum.

1983 komst hann yfir heimagert vopn sem hann notaði til að stinga óvopnaðan fangavörð til bana. Ástæðan er talin vera að fangavörðurinn hafði eyðilagt nokkrar teikningar eftir Silverstein. Í kjölfarið var hann settur í einangrun í 23 klukkustundir á sólarhring án nokkurra samskipta við annað fólk nema fangavörðinn sem ýtti matarbakka inn til hans einu sinni á dag. Einu sinni á dag fékk hann að fara út í garð og hreyfa sig í klukkustund en aleinn.

Hann afplánaði þrjá lífstíðardóma og átti ekki möguleika á að vera látinn laus fyrr en 2095.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 dögum

Óttast að tugir hafi verið myrtir og líkunum varpað í eitt stærsta stöðuvatn landsins

Óttast að tugir hafi verið myrtir og líkunum varpað í eitt stærsta stöðuvatn landsins
Pressan
Fyrir 3 dögum

Mikið drama hjá Heineken – Misstu yfirráðin yfir brugghúsum

Mikið drama hjá Heineken – Misstu yfirráðin yfir brugghúsum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Varar við því að 50 þúsund bandarískir hermenn verði sendir heim í líkkistum

Varar við því að 50 þúsund bandarískir hermenn verði sendir heim í líkkistum
Pressan
Fyrir 4 dögum

Rolex-málið og systurnar

Rolex-málið og systurnar