fbpx
Mánudagur 29.apríl 2024
Eyjan

Björn Bjarna: „Enginn lítur á Ísland sem ESB-umsóknarríki nema ef til vill einhverjir í SDG-aðdáendahópnum“

Ritstjórn Eyjunnar
Mánudaginn 20. maí 2019 19:00

Mynd Hanna DV

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Björn Bjarnason, fyrrverandi dómsmálaráðherra, segir Morgunblaðið ganga erinda Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar í grein Hjartar J. Guðmundssonar blaðamanns, um stöðu aðildarumsóknar Íslands að Evrópusambandinu. Setur hann málið í samhengi við  baráttu Morgunblaðsins gegn þriðja orkupakkanum:

 „Þriðji orkupakkinn (O3) er enn til annarrar umræðu á alþingi í dag, mánudaginn 20. maí. Miðflokksmenn ræddu málið hver við annan í mörgum ræðum og heila nótt í fyrri viku. Neikvætt tal þeirra og annarra um EES-samningin varð til þess að hópur ungs fólks tók sig saman og birti opnu-auglýsinguna sem hér sést í Fréttablaðinu í dag. Sama dag birtir Guðni Ágústsson, fyrrv. formaður Framsóknarflokksins, grein fjandsamlega EES í Morgunblaðinu.

Samhliða þessu er á mbl.is endurvakin tortryggni meðal andstæðinga O3 og í aðdáendahópi Sigmundar Davíðs um hvort hann hafi gengið nægilega tryggilega frá afturköllun ESB-aðildarumsóknarinnar fyrri hluta árs 2015 þegar þeir félagarnir Sigmundur Davíð forsætisráðherra og Gunnar Bragi utanríkisráðherra fóru með málið. Uppi eru kenningar um samsæri embættismanna í því skyni að blekkja þá, þeir hafi ekki gert sér grein fyrir muninum á hvort Ísland væri candidate country eða applicant country. Báðir segjast þeir hafa verið í góðri trú um að þeir hafi dregið umsókn Íslands til baka. Víst er að enginn lítur á Ísland sem ESB-umsóknarríki nema ef til vill einhverjir í SDG-aðdáendahópnum.

Þeir bera greinilega ekki fullt traust til leiðtogans sem segir í Morgunblaðinu í dag: „Frá mínum bæjardyrum séð er þetta alveg skýrt og ég fékk það staðfest á fundum mínum með bæði Juncker og Tusk að Ísland væri ekki lengur umsóknarríki að Evrópusambandinu.“ Boðar Sigmundur Davíð að hann ætli að flytja tillögu til þingsályktunar til að fá stuðning annarra þingmanna við því að þessi skilningur hans sé réttur, Ísland sé ekki lengur ESB-umsóknarríki.

Forvitnilegt verður að fylgjast með framvindu þessa máls. Engir vita betur hvernig það er vaxið en Sigmundur Davíð og Gunnar Bragi. Þeir hafa heiður að verja gagnvart þeim samherjum sínum sem telja þá hafa verið beitta blekkingum. Þá er spurning hvort ætlunin sé að sanna að fyrir handvömm þeirra sé Ísland enn ESB-umsóknarríki.“

Þá segir Björn að hann hafi verið sakaður af Miðflokksmönnum um að bera samsæriskenningar á torg:

„Hér hefur í nokkrum pistlum verið rifjað upp hvernig staðið var að O3 í stjórnartíð Sigmundar Davíðs og Gunnars Braga þegar rétti tíminn var til að koma að fyrirvörum af Íslands hálfu áður en málið yrði að sameiginlegu EES-máli. Engir tilburðir voru í þá veru. Þvert á móti fékk O3 flýtimeðferð með lögfestingu hluta pakkans vorið 2015.

Þessi upprifjun hefur orðið til þess að í málþófi miðflokksmanna um O3 á alþingi hefur Sigmundur Davíð sakað mig um að hafa „sett af stað“ fráleitar samsæriskenningar um starfshætti hans og Gunnars Braga vegna O3. Í þingræðu 14. maí talaði formaður Miðflokksins um „handbók Björns Bjarnasonar“ og sagði orðrétt: „Það segir sína sögu um málefnarýrð þegar meira að segja formaður Samfylkingarinnar þarf að lesa upp úr handbók frá Birni Bjarnasyni…“

Hér vísar Sigmundur Davíð í það sem birst hefur hér á vefsíðunni um framgöngu hans. Það er sárasaklaust miðað við ásakanir um að hann hafi verið blekktur og ekki dregið ESB-aðildarumsókn Íslands til baka.

Skal viðurkennt að ekki hefur hvarflað að mér að draga í efa réttmæti þeirra orða Sigmundar Davíðs að Ísland sé ekki lengur ESB-umsóknarríki. Hvernig hefði hann brugðist við slíkri samsæriskenningu hér á síðunni?“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Vilja gera Snæfellsjökul að forseta Íslands

Vilja gera Snæfellsjökul að forseta Íslands
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Hallgrímur vandar Katrínu ekki kveðjurnar- „Er einhver munur á VG og XD?“

Hallgrímur vandar Katrínu ekki kveðjurnar- „Er einhver munur á VG og XD?“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Óæskilegt lesefni

Óttar Guðmundsson skrifar: Óæskilegt lesefni
Eyjan
Fyrir 1 viku

Trúnaði aflétt af leynilegu minnisblaði um meint spillingarmál – „Hlýtur að teljast vafasamt“

Trúnaði aflétt af leynilegu minnisblaði um meint spillingarmál – „Hlýtur að teljast vafasamt“