Miðflokkurinn sendi í dag frá sér tilkynningu þar sem fundið var að því að setja ætti mál þriðja orkupakkans á dagskrá Alþingis á morgun. Fannst Miðflokknum óeðlilega skammur tími gefinn til að leggja fram minnihlutaálit, en Miðflokkurinn var eini flokkurinn sem greiddi gegn tillögunni á fundi utanríkismálanefndar í morgun.
Sjá nánar: Miðflokkurinn brjálaður eftir fund utanríkismálanefndar:„Óeðlilega skammur tími í jafn stóru máli“
Björn Bjarnason, fyrrverandi dómsmálaráðherra Sjálfstæðisflokksins, segir yfirlýsingu Miðflokksins „firru“ og bendir á að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins og Gunnar Bragi Sveinsson, formaður þingflokksins, hafi ekki séð sér fært að taka þátt í nefndarstörfum utanríkismálanefndar í síðustu viku eða atkvæðagreiðslum um málið.
„ Í þessum orðum felst sama firring og í öllu öðru hjá Miðflokksmönnum. Allir sem setið hafa í stjórnum eða nefndum vita að varla er unnt að sýna slíkum hópum meira virðingarleysi en að sækja ekki fundi en koma síðan eftir að afgreiðslu máls er lokið í stjórninni eða nefndinni og láta eins og málið hefði átt að vinna á annan veg. Þá er það venja í þingnefndum að óski nefndarmaður eftir að einhver komi á fund nefndarinnar er orðið við þeirri ósk.
Núverandi forystumenn Miðflokksins hafa alla tíð sýnt efnislegum þáttum O3-málsins tómlæti. Í tíð Gunnars Braga sem utanríkisráðherra, 2013 til 2016, átti hann kost á að láta sækja fundi í sérfræðingahópum ESB og lagasetningarnefndum ESB og koma gagnrýnum sjónarmiðum sínum á framfæri. Þess í stað átti hann aðild að flýtimeðferð á hluta O3 með samþykkt laga 28. maí 2015.“