fbpx
Sunnudagur 24.ágúst 2025
Fréttir

Þorsteinn segir nauðsynlegt að fólk hætti að eignast börn: „Menn ættu ekki að láta blekkjast“

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 7. maí 2019 16:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þorsteinn Sæmundsson stjörnufræðingur segir að baráttan gegn loftslagsbreytingum sé vonlítil ef ekki tekst að stöðva fjölgun mannkyns. Hann bætir við að börn sem hafa undanfarið mótmælt á Austurvelli ættu að setja sér það markmið að ferðast ekki með flugvélum. Þetta segir hann í aðsendum pistli í Morgunblaðið.

„Að undanförnu hafa birst myndir í blöðum og sjónvarpi af kröfugöngum barna, bæði hérlendis og erlendis. Börnin krefjast þess að hinir fullorðnu geri átak í umhverfismálum því að framtíð unga fólksins sé í veði. Óskin er almenns eðlis fremur en að tilteknar aðgerðir séu nefndar. Þessu framtaki barnanna hefur yfirleitt verið vel tekið, þótt örlað hafi á þeirri skoðun að börnin líti á þetta sem tækifæri til að losna við nokkrar stundir af skólasetu. Ástæðulaust er að taka undir þær grunsemdir,“ skrifar Þorsteinn.

Ættu að hætta að fljúga

Líkt og fyrr segir bendir Þorsteinn á að börnin ættu að taka Gretu Thunberg sér til fyrirmyndar og sniðganga ferðalög með flugvélum. „Á hinn bóginn mætti benda börnunum á, að þau geti sjálf sett sér markmið. Þau gætu til dæmis farið að fordæmi sænsku stúlkunnar Gretu Thunberg, sem var upphafsmaður þessara aðgerða. Greta hafnaði því að vera viðstödd ráðstefnu í Reykjavík um sjálfbæran lífsstíl því að hún vildi ekki ferðast með flugvél vegna mengunarinnar sem af því hlytist. Hér á landi tala menn um að draga úr akstri mengandi bifreiða. Ef hugur fylgdi máli myndi fólk draga stórlega úr flugferðum og jafnvel setja háa skatta á flugfargjöld, því að flugið er margfalt meiri mengunarvaldur en annar ferðamáti,“ segir Þorsteinn.

Þorsteinn gerir sér þó grein fyrir að þetta muni seint gerast. „En slíkt verður seint gert – fólk vill ekki neita sér um það frelsi sem ódýrt flug veitir, að ekki sé minnst á tekjurnar af ferðamönnum. Er líklegt að þetta viðhorf breytist þegar börnin sem nú mótmæla verða fullorðin?,“ spyr Þorsteinn.

Líta til Kína

Þorsteinn segir að rót vandans sé fólksfjölgun. „Þær aðgerðir í umhverfismálum sem menn hafa rætt um í alvöru eru góðra gjalda verðar. Þær munu þó ekki ná tilgangi sínum ef ekki er tekist á við rót vandans sem við er að glíma, en það er fólksfjölgunin í heiminum. Mannfjöldi á jörðinni er nú sagður 7,7 milljarðar og hefur þrefaldast á síðustu 70 árum. Það þarf engan speking til að sjá að í óefni stefnir,“ segir Þorsteinn.

Hann bendir á að meira að segja Kína hafi hætt því að hamla barneignir. „Eina þjóðin sem reynt hefur að stemma stigu við fólksfjöldanum er Kínverjar sem gáfu út tilskipun þess efnis árið 1980 að fjölskyldur mættu aðeins eiga eitt barn. En jafnvel í því mikla stjórnvaldsríki sem Kína er reyndist þetta illframkvæmanlegt og hafði reyndar þær ófyrirséðu afleiðingar að drengjum fjölgaði mjög umfram stúlkur. Frá árinu 2015 hefur hjónum í Kína verið heimilt að eiga tvö börn. Er því spáð að öllum hömlunum á barneignum verði senn aflétt því að stjórnvöld hafi þungar áhyggjur af fjárhagslegum afleiðingum þess að ungu starfandi fólki fækki hlutfallslega meðan öldruðum fjölgi,“ segir Þorsteinn.

Ekki blekkjast

Þorsteinn segir að fólk sem sé umhugað um umhverfið ætti að neita sér um börn. „Kona nokkur í Þýskalandi, Verena Brunschweiger, menntaskólakennari á fertugsaldri, hefur vakið talsverða athygli og nokkurn úlfaþyt með bók sem hún gaf út nýlega þar sem hún hvetur fólk til að draga úr barneignum og segist sjálf ætla að neita sér um að eiga barn. Bendir hún á tölur sem sýni að slík stefna yrði miklu áhrifameiri en að draga úr flugferðum eða selja bílinn. Ólíklegt verður að þó teljast að Verena fái miklu breytt. Meðfædd hvöt fólks til barneigna er sterkari en svo að fortölur sem þessar hafi veruleg áhrif,“ segir Þorsteinn.

Hann segir að lokum að fólk ætti ekki að láta blekkjast og halda að sáralitlar aðgerðir hafi nokkur áhrif. „Ef ekki tekst að stöðva fjölgun mannkyns og snúa þróuninni við, missa allar aðrar aðgerðir í umhverfismálum marks. Þá verða menn að sætta sig við orðinn hlut og búa sig sem best undir það sem koma skal: breytt veðurfar, bráðnun jökla, hækkandi sjávarstöðu, sívaxandi flóttamannastraum, þverrandi auðlindir og alls kyns mengun sem óhjákvæmilega leiðir af fjölgun fólks. Menn ættu ekki að láta blekkjast af þeirri tálsýn að sársaukalitlar aðgerðir muni leysa þann stórfellda vanda sem við okkur blasir.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Landsréttur sneri við úrskurði héraðsdóms í Hraðbankamálinu og sakborningur fer í gæsluvarðhald

Landsréttur sneri við úrskurði héraðsdóms í Hraðbankamálinu og sakborningur fer í gæsluvarðhald
Fréttir
Í gær

Póstburðarmaður vekur mikla athygli eftir að þetta náðist á myndband

Póstburðarmaður vekur mikla athygli eftir að þetta náðist á myndband
Fréttir
Í gær

Pósturinn lokar tímabundið fyrir vörusendingar til Bandaríkjanna

Pósturinn lokar tímabundið fyrir vörusendingar til Bandaríkjanna
Fréttir
Í gær

Segir nauðsynlegt að takmarka Airbnb og setja á leigubremsu

Segir nauðsynlegt að takmarka Airbnb og setja á leigubremsu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Prís alltaf verið með lægsta verðið

Prís alltaf verið með lægsta verðið
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Gerður Magnúsdóttir skólastjóri Barnaskóla Kársness

Gerður Magnúsdóttir skólastjóri Barnaskóla Kársness