Hjón, búsett í Sandgerði, hafa verið dæmd fyrir gróf kynferðisbrot gegn dóttur konunnar og dóttur þeirra beggja. Maðurinn hlaut sex ára fangelsisdóm meðan konan fékk fimm ára fangelsi.
RÚV greinir frá þessu. Komið hefur fram að parið fluttist til Sandgerðis fyrir rúmi ári ásamt börnum sínum. Lítið fór fyrir parinu en börn þess eignuðust fljótlega vini í gegnum skólastarfið. Parið hafði áður búið um árabil á Akranesi.
Þau er strangtrúuð og tilheyrðu Samfélagi trúaðra, söfnuðinum sem stendur á bakvið sjónvarpsstöðina Omega. Þau voru í viðtali við Skessuhorn fyrir nokkrum árum þar sem ýmislegt kom fram. Þá var maðurinn atvinnulaus og sagði: Það er gott að geta dreift huganum þegar maður er atvinnulaus. Annars kvíði ég ekki framtíðinni og legg allt í drottins hendur.“
Parið var dæmt fyrir að hafa nauðgað dóttur konunnar, stjúpdóttur mannsins, og tekið allt upp á myndbönd og að hafa tekið ljósmyndir. Þau eru einnig ákærð fyrir að hafa gefið stúlkunni áfengi og fyrir framleiðslu barnakláms. Hann var sagður hafa haft í vörslu sinni 807 ljósmyndir og 29 myndskeið sem sýndu börn á kynferðislegan hátt.