fbpx
Föstudagur 22.ágúst 2025
Fréttir

Sara Sjöfn fokreið: „Hvað er verið að bjóða okkur uppá?“

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 23. apríl 2019 13:36

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sara Sjöfn Grettisdóttir, ritstjóri Eyjafrétta, segist fokreið í ritstjórnarpistli sem birtist í miðlinum. Ástæðan er að ef ekkert verður gert þá muni einhver deyja vegna biðar eftir sjúkraflugi úr Vestmannaeyjum.

„Sjúkraflugvél fyrir Vestmannaeyjar er staðsett á Akureyri. Það eru um 520km frá Vestmanneyjum til Akureyrar. Í mínum haus er akkurat ekkert rökrétt við þetta og hreinlega verið að taka óþarfa áhættu með líf fólks.

„Það eru enn 45 mínútur í flugvélina,“ sagði læknirinn sem var að meðhöndla föður minn, en rúmri klukkustund áður hafði verið hringt á sjúkravél. F1 voru skilaboðin til þeirra, sem þýðir í raun bráðatilfelli, forgangur, drífið ykkur hingað sem allra fyrst,“ segir Sara Sjöfn.

Hún segir að sem betur fer fór ekki verr í þetta skipti.

„Sjúkravélin með pabba minn um borð lenti í Reykjavík rúmum þremur klukkustundum eftir að hringt var eftir þeim. Til allra hamingju var þetta ekki eins alvarlegt og í upphafi var talið og starfsfólk sem var á vakt á HSU í Vestmannaeyjum náði tökum á aðstæðum áður en vélin kom. Fyrir fjórum árum fékk mágur minn heilablóðfall. Hann var 17 ára, það var júlí, veðrið var gott. Sama var uppá teningnum hjá honum, læknirinn hringdi eftir sjúkravél. F1, forgangsflug. Hann beið ásamt móður sinni í tvo og hálfan tíma eftir flugvélinni, þarna skipti hver einasta mínúta máli!,“ segir Sara.

Hún veltir því fyrir sér hve margir hafi svipaða sögu að segja. „Ég velti fyrir mér hversu margar fjölskyldur eiga svona sögur, af bið eftir sjúkraflugi. Hvað þarf að gerast til að laga þetta, þarf fólk að deyja í biðinni svo eitthvað breytist? Ég verð svo reið þegar ég hugsa um þetta! Hvað er verið að bjóða okkur uppá? Eigum við ekki betra öryggi skilið. Ætti ekki að vera algjört forgangsatriði að koma þessu í lag. Örugg heilbrigðisþjónusta og greiðar samgöngur eru mannréttindi sem ætti að vera aðgengilegar hverjum einasta Íslending. Sjúkraflugvél á að sjálfsögðu að vera staðsett á Norðurlandi. En það á líka ein slík að vera til taks á Suðurlandi!,“ segir Sara Sjöfn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Sonur Lindu slasaður eftir stórhættulegt skemmdarverk á reiðhjólinu hans – „Ég ætlaði varla að trúa því að þetta væri ennþá í gangi“

Sonur Lindu slasaður eftir stórhættulegt skemmdarverk á reiðhjólinu hans – „Ég ætlaði varla að trúa því að þetta væri ennþá í gangi“
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Lögreglan á Suðurnesjum ætlar ekki að hefja nýja rannsókn á Geirfinnsmálinu – Bókarhöfundar nafngreindu meintan banamann Geirfinns

Lögreglan á Suðurnesjum ætlar ekki að hefja nýja rannsókn á Geirfinnsmálinu – Bókarhöfundar nafngreindu meintan banamann Geirfinns
Fréttir
Í gær

Hún hefur heimsótt yfir 90 lönd en Ísland er eina landið sem hún getur heimsótt aftur og aftur – Nefnir dæmi um hugulsemi Íslendinga

Hún hefur heimsótt yfir 90 lönd en Ísland er eina landið sem hún getur heimsótt aftur og aftur – Nefnir dæmi um hugulsemi Íslendinga
Fréttir
Í gær

Faðir flúði til óbyggða með börnin og hefur verið á flótta í fjögur ár – Fjölskyldan grátbiður hann um að gefa sig fram

Faðir flúði til óbyggða með börnin og hefur verið á flótta í fjögur ár – Fjölskyldan grátbiður hann um að gefa sig fram
Fréttir
Í gær

Björn Ingi segir átök vera fram undan: „Tekist er á um þessi mál að tjaldabaki þessa dagana“

Björn Ingi segir átök vera fram undan: „Tekist er á um þessi mál að tjaldabaki þessa dagana“
Fréttir
Í gær

Guðrún segir að slagkrafturinn í sleggju Kristrúnar sé enginn

Guðrún segir að slagkrafturinn í sleggju Kristrúnar sé enginn