fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Bongóblíða á sumardaginn fyrsta – Sjáðu spánna

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 23. apríl 2019 10:32

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Búast má við örtröð í ísbúðum og sundlaugum landsins á fimmtudaginn ef marka má veðurspá Veðurstofu Íslands. Spáð er að hiti verði 10 til 17 stig, en svalara á Austfjörðum.

Á höfuðborgarsvæðinu er spáð allt að 15 stiga hita og heiðskýrt. Almennur frídagur er þennan daga, sumardagurinn fyrsti, og má því ætla að flestir geti baðað sig í sólinni.

Í hugleiðingu veðurfræðings á vedur.is segir: „Á fimmtudag er áfram spáð austanátt, víða á bilinu 8-13 m/s, en 13-18 með suðurströndinni. Margir myndu eflaust vilja hafa rólegri vind á sumardaginn fyrsta. Góðu fréttirnar eru þær að vel ætti að sjást til sólar um tíma á öllu landinu. Hitinn verður eins og best gerist á þessum degi, ætti að ná kringum 15 stig í mörgum landshlutum, svalara þó með austurströndinni þar sem andar beint af hafi. Að lokum ber að taka fram að útlit er fyrir að það fari að rigna á sunnanverðu landinu að kvöldi fimmtudags.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Davíð Oddsson er látinn

Davíð Oddsson er látinn
Fréttir
Í gær

Móðir verulega ósátt við viðbrögðin eftir að barnið kom heim af leikskólanum með áverka – „Þetta er náttúrulega galið hvernig kerfið okkar er“

Móðir verulega ósátt við viðbrögðin eftir að barnið kom heim af leikskólanum með áverka – „Þetta er náttúrulega galið hvernig kerfið okkar er“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Oddný táraðist er hún rifjaði upp erfiðleika í æsku – „Ég ætla nú ekki að fara gráta í viðtalinu“

Oddný táraðist er hún rifjaði upp erfiðleika í æsku – „Ég ætla nú ekki að fara gráta í viðtalinu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova