fbpx
Sunnudagur 28.apríl 2024
Fréttir

Fyrirtæki í ferðaþjónustu gætu komið að endurreisn WOW: „Ég er viss um að mjög margir muni skoða það“

Erla Dóra Magnúsdóttir
Mánudaginn 15. apríl 2019 16:25

Unnið er að stofnun nýs félags á grunni WOW air.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fall WOW hefur óneitanlega haft áhrif á ferðamannaiðnaðinn á Íslandi. Því kæmi það líklega fáum á óvart að fyrirtæki í ferðaþjónustu væru tilbúin að leggja ýmislegt á sig til að gera endurreist WOW að veruleika. Kristófer Óliversson, framkvæmdastjóri Center Hotels og formaður fyrirtækja í hótel- og gistiþjónustu segist, í samtali við RÚV, vita um mikinn áhuga meðal fyrirtækja í ferðaþjónustu að taka þátt í endurreisn WOW, jafnvel með beinum hætti.

„Það er mjög mikill áhugi hjá mönnum að WOW fari aftur af stað. Ef einhver möguleiki er á því,“ segir Kristófer í samtali við RÚV og bætir við að hann hafi sjálfur hug á því að fjárfesta í endurreisninni. Hins vegar sé fjárfestingasvigrúm hótelanna ekki mikið.

Í kvöldfréttum RÚV á laugardag var greint frá því að Skúli Mogensen, stofnandi WOW, hafi fundað með eigendum KEA-hótela í síðustu viku um stofnun nýs flugfélags.

Kristófer segir að mörg áföll hafa dunið á ferðaþjónustunni upp á síðkastið, svo sem verkföll og að sjálfsögðu fall WOW.

„Svo er náttúrulega þetta áfall með gjaldþrotið og svo er annað áfall sem er líka stórt, sem er ef Icelandair getur ekki notað þessar Max þotur í sumar þá er það að hafa mikil áhrif.“

Hann segir ófært að treysta því að iðnaðurinn rétti sjálfur úr kútnum.

„Mér finnst ekki alveg sjálfgefið að þetta bara reddist, ég held að það þyrfti meira til. Til dæmis að WOW færi af stað aftur“

„Ef að það verða einhverjir möguleikar uppi þar sem að margir aðilar geta lagst á árina þá er ég viss um að mjög margir muni skoða það“

RÚV hefur það einnig eftir Davíð Torfa Ólafssyni, framkvæmdastjóra Íslandshótela, að það sé hagsmunamál fyrir hótelrekendur að annað flugfélag verði sett á laggirnar í stað WOW, en vildi þó ekkert gefa upp um hvort Íslandshótel ætlaði að skoða að taka þátt í endurreisn WOW.

Ljóst er að margir hafa hagsmuna að gæta af mögulegri endurreisn WOW þá sérstaklega ferðamannaiðnaður landsins sem hefur orðið fyrir þungum skellum frá áramótum, en þó einnig fleiri. Á vefsíðunni hluthafi.com eru svonefndir hollvinir almennrar samkeppni að hvetja Íslendinga til samstöðu með því að standa sameiginlega að endurreisn WOW og reyna nú að safna hlutafé svo hægt sé að stofna félag sem gæti tekið þátt í endurreisninni.

„Sameinumst um stofnfé, þá þurfum við ekki hvert og eitt að leggja mikið til þar sem margt smátt gerir eitt stórt, þ.e. flugfélag.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum
Enn einn Snapchat-perrinn
Fréttir
Í gær

Sjáðu myndbandið: Sverrir Einar handtekinn og leiddur út í járnum í miðbænum

Sjáðu myndbandið: Sverrir Einar handtekinn og leiddur út í járnum í miðbænum
Fréttir
Í gær

Snorri og Patrik vekja hneykslun: Konan hugsi um börnin og karlinn um peningana – „Gömlukallaraus í ungum mönnum“

Snorri og Patrik vekja hneykslun: Konan hugsi um börnin og karlinn um peningana – „Gömlukallaraus í ungum mönnum“
Fréttir
Í gær

Pálmatré raunhæft verkefni en aðeins eitt tré mun rísa

Pálmatré raunhæft verkefni en aðeins eitt tré mun rísa
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kári Hansen skilaði inn meðmælum til forseta Íslands rafrænt

Kári Hansen skilaði inn meðmælum til forseta Íslands rafrænt
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Reiði vegna skemmdarverks á Suðurgötu: Málið verður tilkynnt lögreglu – Sjáðu myndina

Reiði vegna skemmdarverks á Suðurgötu: Málið verður tilkynnt lögreglu – Sjáðu myndina
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Tveir Bretar hætt komnir á Íslandi: Grét þegar hann sagði frá slysinu – Vinur hans enn á spítala

Tveir Bretar hætt komnir á Íslandi: Grét þegar hann sagði frá slysinu – Vinur hans enn á spítala
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Mótmælin á Tenerife – Vill ekki ferðamenn með „allt-innifalið“ armbönd

Mótmælin á Tenerife – Vill ekki ferðamenn með „allt-innifalið“ armbönd
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Helga Þórisdóttir búin að ná meðmælendum

Helga Þórisdóttir búin að ná meðmælendum