Matvælafyrirtækið Miso Tasty framkvæmdi sniðuga könnun á dögunum og spurði Breta hvernig þeir elda núðlur. Kom á daginn að 84 prósent þeirra sem tóku þátt hafa eldað núðlur vitlaust allt sitt líf.
Japanski kokkurinn Bonnie Chung, stofnandi Miso Tasty, fer ítarlega yfir það á vef Daily Mail hvernig eigi að elda núðlur.
„Núðlur eru tákn lífsins í japanskri menningu og að borða þær er talið vera sérstök reynsla sem ætti að meta og njóta,“ segir Bonnie.
Í greininni kemur fram að margir Bretar tengi núðlur við fljótlegan og einfaldan mat, eins og á við Íslendinga eflaust líka. Bonnie segir það ekkert flókið að elda núðlur, en það þurfi að gera það rétt til að fá það besta úr núðlunum.
„Klístraðar, maukaðar, slímugar núðlur er akkúrat það sem við viljum forðast,“ segir Bonnie. „Eins og pasta, verða núðlur að vera „al dente“, eða „shikoshiko“ eins og það er kallað í Japan,“ bætir hún við, en „al dente“ þýðir í raun að pasta sé eldað akkúrat rétt.
Bonnie mælir með að sjóða núðlurnar í potti eða pönnu. Síðan segir hún að fólk eigi að skola þær strax í vatni til að fjarlægja sterkjuna, en hún verður til þess að núðlurnar verða klístraðar. Síðan eru núðlurnar hvíldar í ísbaði á meðan önnur hráefni eru tekin til.
„Þetta hljómar eins og brjálæði að setja núðlurnar á ís en það stöðvar eldunina strax þannig að þær verði ekki maukaðar,“ segir Bonnie. „Síðan hitið þið núðlurnar í tíu sekúndur í sjóðandi vatni rétt áður en þær eru bornar fram.“