Ebba Guðný Guðmundsdóttir, fjölmiðlakona og matgæðingur, fór mikinn í sögu sinni á Instagram í gær um tómata í plastumbúðum.
Ebba hafði keypt svokallaða Sólskinstómata, sem eru litlir tómatar, í plastumbúðum og finnst miður að ekki sé hægt að nýta umbúðirnar aftur.
„Ég myndi vilja geta sturtað þessum tómötum bara í pokann minn í búðinni og skilið þetta hérna eftir einhvers staðar í búðinni þannig að grænmetisbændur gætu sótt þetta og notað þetta aftur. Þetta er fáránlegt!“ segir Ebba og bætir við að hún að sjálfsögðu flokki plastumbúðirnar.
„Ég set þetta samt reyndar í plast en það er samt alveg steikt.“
Svo bregður Ebba á leik og notar plastumbúðirnar sem skraut til að skemmta fylgjendum sínum.
En hvað segja lesendur DV – hefur Ebba lög að mæla? Ættu grænmetisbændur að nota umbúðirnar aftur og aftur til að sporna gegn sóun?