fbpx
Þriðjudagur 02.desember 2025
Fréttir

Íslendingar senda 25 milljónir til Mósambík og Malaví

Ritstjórn DV
Föstudaginn 29. mars 2019 13:11

Guðlaugur Þór. Mynd: DV/Hanna

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Utanríkisráðuneytið hefur ákveðið að fela Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (WFP) að ráðstafa 200 þúsund Bandaríkjadölum – um 25 milljónum íslenskra króna – til björgunarstarfa á hamfarasvæðunum í Mósambík og Malaví. Þetta kemur fram í frétt á vef Stjórnarráðsins.

Óttast er að yfir eitt þúsund íbúar hafi látist í ofsaflóðum í kjölfar fellibylsins Idai sem gekk yfir sunnanverða Afríku fyrir hálfum mánuði. Þegar hefur verið staðfest að rúmlega 760 hafi farist en hundruð íbúa er enn saknað, flestra í Beira og nágrenni, þar sem tæplega 34 þúsund heimili eyðilögðust algjörlega.

„Eyðileggingin af völdum fellibylsins Idai er meiri en orð fá lýst og íbúar hamfarasvæðanna hafa liðið ómældar þjáningar. Við getum ekki staðið aðgerðalaus hjá slíkum hörmungum heldur ber okkur siðferðisleg skylda til að hjálpa þeim sem um sárt eiga binda, ekki síst í ljósi þess að um samstarfsríki Íslands til margra ára er að ræða. Ég bind vonir við að framlag okkar til Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna hafi verulega þýðingu fyrir þá sem verst hafa orðið úti,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra í frétt á vef Stjórnarráðsins.

Þá segir að þúsundir íbúa á flóðasvæðunum hafi misst allt sitt og björgunarsveitir leggi nú áherslu á matvæla- og lyfjaaðstoð, vatn- og salernisaðstöðu, auk þess sem kapp er lagt á að koma upp neyðarskýlum. Heilbrigðisstarfsfólk leggur nótt við dag að bólusetja íbúa gegn kóleru til að freista þess að afstýra faraldri. Þegar hafa verið staðfest 139 tilvik þessa banvæna smitsjúkdóms í Mósambík. Aðrir vatnsbornir sjúkdómar hafa líka látið á sér kræla.

Filipe Nyusi forseti Mósambík segir hamfarirnar þær mestu í sögu landsins. Mikil þörf er fyrir stuðning alþjóðasamfélagsins og ljóst að enduruppbygging tekur langan tíma.

Mikil eyðilegging og manntjón varð einnig í Zimbabwe og Malaví af völdum veðurofsans og flóðanna. Malaví er annað tveggja samstarfslanda Íslands í alþjóðlegri þróunarsamvinnu og Íslendingar styðja áfram þróunarstarf í Mósambík þótt sendiráði Íslands hafi verið lokað þar fyrir rúmu ári. Báðar þjóðirnar eru meðal fátækustu þjóða í heimi.

Sameinuðu þjóðirnar hafa óskað eftir 35 milljarða króna framlagi til uppbyggingarstarfs í Mósambík næstu þrjú árin.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Hló og grét þegar hún las verklagsreglur KÍ um ofbeldi í skólum – „Þetta er svo fíflalegt að það er engu lagi líkt“

Hló og grét þegar hún las verklagsreglur KÍ um ofbeldi í skólum – „Þetta er svo fíflalegt að það er engu lagi líkt“
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Trump segir Maduro og eiginkonu hans að yfirgefa Venesúela strax

Trump segir Maduro og eiginkonu hans að yfirgefa Venesúela strax
Fréttir
Í gær

Dorrit var rænd á götum Lundúna í gær

Dorrit var rænd á götum Lundúna í gær
Fréttir
Í gær

Segja eina ástsælustu jólahefð Svía ýta undir brot á réttindum barna

Segja eina ástsælustu jólahefð Svía ýta undir brot á réttindum barna