
Hlutabréf í Icelandair hafa hækkað talsvert í fyrstu viðskiptum dagsins. Hefur gengi bréfa hækkað um 13,22 prósent það sem af er degi. Það sama er þó ekki að segja um önnur fyrirtæki. Til dæmis lækka Marel og Sjóvá lítillega.
WOW tilkynnti í morgun að þeir hefðu hætt rekstri og því var við því að búast að bréf í Icelandair hækkuðu.