

Manchester United hefur staðfest ráðningu sína á Ole Gunnar Solskjær til framtíðar.
Solskjær tók við United í desember eftir að Jose Mourinho var rekinn.
Solskjær gerir samning til þriggja ára en áður var hann þjálfari Molde.
Pressa er á Solskjær að klára sæti í Meistaradeild Evrópu að ári en liðið berst um fjórða sæti í deildinni.
Solskjær er goðsögn hjá félaginu eftir tíma sinn sem leikmaður.