fbpx
Miðvikudagur 20.ágúst 2025
Fréttir

Sauð upp úr á göngum Alþingishússins: Sonur Þorsteins sagði Má seðlabankastjóra að drulla sér burtu

Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 27. mars 2019 12:15

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Baldvin Þorsteinsson, stjórnarformaður Eimskips og sonur Þorsteins Baldvinssonar forstjóra Samherja, veittist í morgun að Má Guðmundssyni seðlabankastjóra og sagði orðrétt við hann: „Sýndu smá sómakennd og drullaðu þér burtu.“ Þetta kemur fram í frétt á vef Fréttablaðsins. Atvikið átti sér stað eftir fund stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar í morgun en þar var farið yfir framgöngu Seðlabankans gagnvart Samherja. Gjaldeyriseftirlit Seðlabankans framkvæmdi húsleitir í húsnæði Samherja vegna gruns um brot á gjaldeyrislögum en fyrirtækið var aldrei ákært og Seðlabankinn hefur verið ásakaður um að hafa farið offari í málinu.

Baldvin veittist að Má er seðlabankastjórinn hugðist heilsa Þorsteini, föður Baldvins, eftir fundinn. Samkvæmt frásögn Fréttablaðsins gekk Kolbeinn Óttarsson Proppé, þingmaður VG, á milli manna og stillti til friðar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Kærði ákvörðun um að fá ekki ökuréttindi aftur eftir að hafa verið sviptur ævilangt fyrir áratug

Kærði ákvörðun um að fá ekki ökuréttindi aftur eftir að hafa verið sviptur ævilangt fyrir áratug
Fréttir
Í gær

Meintur níðingur á Múlaborg var undir sérstöku eftirliti – Tilkynnt um „sérkennilegt háttalag“ í kringum börn

Meintur níðingur á Múlaborg var undir sérstöku eftirliti – Tilkynnt um „sérkennilegt háttalag“ í kringum börn
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sara gagnrýnir kennaranámið: „Ég þarf ekki að mæta í heil­an tíma og gera þessa hluti“

Sara gagnrýnir kennaranámið: „Ég þarf ekki að mæta í heil­an tíma og gera þessa hluti“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Var á gangi í Osló – Þá hringdi Trump óvænt

Var á gangi í Osló – Þá hringdi Trump óvænt