fbpx
Sunnudagur 19.maí 2024

Handviss um að Avril Lavigne dó fyrir 15 árum og tvífari sé í hennar stað

Ritstjórn Bleikt
Þriðjudaginn 19. mars 2019 16:00

Avril Lavigne og hin svo kallaða „Melissa.“

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Avril Lavigne hefur verið miðpunktur furðulegra orðróma síðustu ár. Samsæriskenning heldur því fram að hún hafi dáið fyrir fimmtán árum og leikkona komið í hennar stað.

Frá 2002 til 2007 var kanadíska poppstjarnan gríðarlega vinsæl. Hún gaf út mörg lög sem voru á topplistum um allan heim eins og Complicated og Girlfriend.

Eins og gerist fyrir flesta fræga einstaklinga þá fóru alls konar orðrómar og sögusagnir af stað um stjörnuna.

Ein sérstaklega skrýtin samsæriskenning stendur upp úr. Það er sú kenning að hin raunverulega Avril Lavigne hafi dáið fyrir fimmtán árum og í stað hennar komið leikkona sem þóttist vera hún.

Samsæriskenningin kom frá Brasilíu. Leikkonan sem á að hafa komið í stað Avril heitir Melissa. Þær líta nánast alveg eins út, fyrir utan nokkur atriði eins og augnumgjörð, rödd og skrift.

Þessi samsæriskenning hefur verið á lofti í nokkur ár. Noisey gerði þetta myndband fyrir tveimur árum.

Sannleikurinn er hins vegar sá að Avril hefur verið að kljást við Lyme sjúkdóm síðan 2015. Á sama tíma var hún einnig að ganga í gegnum skilnað við fyrrum eiginmann sinn, Chad Kroeger úr Nickelback. Hún dró sig því í hlé frá sviðsljósinu. Hún gaf út plötuna Head Above Water 15. febrúar síðastliðinn. Við eigum því vonandi eftir að sjá meira af Avril í náinni framtíð.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Brighton staðfestir brottför De Zerbi

Brighton staðfestir brottför De Zerbi
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Búnir að finna arftaka Greenwood – Hefur aðeins skorað þrjú mörk

Búnir að finna arftaka Greenwood – Hefur aðeins skorað þrjú mörk
Fókus
Fyrir 14 klukkutímum

Myndband sýnir hrottalegt ofbeldi Diddy gegn fyrrum kærustu sinni

Myndband sýnir hrottalegt ofbeldi Diddy gegn fyrrum kærustu sinni
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Varð yngsti leikmaður í sögu efstu deildar og bætti met stórstjörnu – Var 13 ára fyrir mánuði síðan

Varð yngsti leikmaður í sögu efstu deildar og bætti met stórstjörnu – Var 13 ára fyrir mánuði síðan
Eyjan
Fyrir 14 klukkutímum

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Baldur Þórhallsson – Gangi Alþingi fram af þjóðinni skal forseti tafarlaust vísa málinu til þjóðarinnar

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Baldur Þórhallsson – Gangi Alþingi fram af þjóðinni skal forseti tafarlaust vísa málinu til þjóðarinnar
Fókus
Fyrir 15 klukkutímum

Upplifði vítiskvalir á Ozempic: „Verra en að eignast barn“

Upplifði vítiskvalir á Ozempic: „Verra en að eignast barn“
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Jóhann Berg gráti næst er hann kvaddi – Sjáðu myndbandið

Jóhann Berg gráti næst er hann kvaddi – Sjáðu myndbandið

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.