fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Fréttir

Maðurinn sem er bestur í hræðilegasta starfi heims

Þegar ósköpin dynja yfir er Robert Jensen kallaður til – Hryðjuverk, hamfarir og slys eru hans ær og kýr- Kemur stjórn á aðstæður þegar stjórnleysi ríkir

Einar Þór Sigurðsson
Sunnudaginn 8. janúar 2017 18:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég er fimmtugur og hef í tvígang verið kallaður á vettvang þegar tugþúsundir hafa látið lífið á aðeins örfáum mínútum,“ sagði Robert Jensen, forstjóri lítt þekkts fyrirtækis á Englandi, Kenyon International Emergency Services, í viðtali við breska blaðið Telegraph ekki alls fyrir löngu. Segja má að Robert þrífist á ógæfu annarra og er hann jafnan kallaður til þegar hörmungarnar dynja yfir; hryðjuverkaárásir, flugslys, lestarslys, jarðskjálftar og flóðbylgjur til að nefna dæmi.

Ótrúleg reynsla

Hamfarirnar sem Robert minntist á hér að framan eru annars vegar flóðbylgjan sem reið yfir Asíu á öðrum degi jóla árið 2004 og hins vegar jarðskjálftinn sem reið yfir Haítí árið 2010. Robert var líka kallaður til þegar fellibylurinn Katrín reið yfir New Orleans og nágrenni með hörmulegum afleiðingum árið 2004, hann var í New York þegar hryðjuverkaárásirnar voru gerðar 11. september 2001 og var líka á ferðamannastaðnum Sousse í Túnis í júní 2015 þegar byssumaður skaut 38 manns til bana, þar á meðal fjölmarga breska ferðamenn.

Robert var meðal annars kallaður til þegar jarðskjálfti og flóðbylgja reið yfir ríki við Indlandshaf á öðrum degi jóla árið 2004.
Hamfarir Robert var meðal annars kallaður til þegar jarðskjálfti og flóðbylgja reið yfir ríki við Indlandshaf á öðrum degi jóla árið 2004.

Mynd: EPA

Hlutverk Roberts og fyrirtækis hans er að koma stjórn á aðstæður þegar algjört stjórnleysisástand ríkir. Þvert á það sem margir kynnu að halda er það ekki endilega í höndum yfirvalda viðkomandi ríkis; lögreglu, tæknideildar lögreglu, björgunarsveita eða annarra viðbragðsaðila að koma hlutum í eðlilegt horf, eða því sem næst, heldur eru það menn eins og Robert, sem eru sérhæfðir í erfiðum aðstæðum, sem fengnir eru til þess.

„Ég er fimmtugur og hef í tvígang verið kallaður á vettvang þegar tugþúsundir hafa látið lífið á aðeins örfáum mínútum.“

Sjá um allt saman

Markmið Roberts, að eigin sögn, er að veita hagnýta leiðsögn í erfiðum aðstæðum þar sem ringulreið ríkir. Meðal þess sem fyrirtæki Roberts býður upp á er að safna saman jarðneskum leifum þeirra sem látist hafa, bera kennsl á þessa einstaklinga og setja upp hjálparmiðstöðvar fyrir aðstandendur þar sem þeir geta nálgast upplýsingar um leið og þær berast. Þá sér fyrirtækið um að koma jarðneskum leifum í hendur aðstandenda, og eigum þeirra, til dæmis þegar flugslys verða.

Robert og fyrirtæki hans var kallað til Haítí þegar hamfarirnar riðu yfir árið 2010.
Mannfall og eyðilegging Robert og fyrirtæki hans var kallað til Haítí þegar hamfarirnar riðu yfir árið 2010.

Mikilvæg fagmennska

Robert kveðst leggja mikla áherslu á fagmennsku enda geta rétt viðbrögð skipt gríðarlega miklu máli þegar stórslys eða hamfarir verða. Flugfélög og ríkisstjórnir heilu landanna eru meðal viðskiptavina fyrirtækisins. Þessir aðilar hafa ekki efni á að gera mistök þegar slys verða enda bjóða mistök upp á málsókn og erfiða tíma í rekstri.

Í umfjöllun GQ-tímaritsins, sem fjallaði ítarlega um starfsemi Roberts og fyrirtækis hans fyrir skemmstu, var til dæmis bent á þá gagnrýni sem Malaysia Airlines fékk á sig þegar farþegaþota flugfélagsins var skotin niður yfir Úkraínu sumarið 2014. Eigur þeirra sem létust lágu á víð og dreif um stórt svæði svo vikum skipti og erfiðlega gekk að koma jarðneskum leifum í hendur aðstandenda. Þess má geta að Malaysia Airlines var ekki meðal viðskiptavina Roberts.

Mikilvægir undirverktakar

Allt í allt eru 500 fyrirtæki eða stofnanir í viðskiptum við Kenyon International Emergency Services. Sem fyrr segir geta þetta verið alls konar fyrirtæki, allt frá flugfélögum til heilu ríkjanna sem eiga reglulega á hættu að verða fyrir barðinu á náttúruhamförum.

Þessi fyrirtæki greiða gjald, allt frá 2.000 Bandaríkjadölum til 100 þúsunda Bandaríkjadala á ári, til að geta nýtt sér þjónustu fyrirtækisins þegar hamfarir ríða yfir. Fyrirtækið bregst þá við með litlum fyrirvara og hefur störf um leið og kallið kemur.

Þá reiðir Robert sig einnig á þjónustu um 1.700 einstaklinga um allan heim sem eru eins konar undirverktakar og eru þeir til taks þegar kallið kemur. Í þeim hópi eru til dæmis réttarmeinafræðingar, sálfræðingar, geðlæknar, lögreglumenn og verkfræðingar.

Lítið sem ekkert var eftir af vél Germanwings sem brotlenti í hlíðum Frönsku Alpanna í mars 2015. Fyrirtæki Roberts var fengið til að halda utan um afleiðingar þessa hörmulega atviks.
Germanwings Lítið sem ekkert var eftir af vél Germanwings sem brotlenti í hlíðum Frönsku Alpanna í mars 2015. Fyrirtæki Roberts var fengið til að halda utan um afleiðingar þessa hörmulega atviks.

Mynd: EPA

Stóra útkallið kom strax

Í umfjöllun Telegraph um fyrirtæki Roberts var rætt við einn þessara viðbragðsaðila, lögreglumanninn Mark Oliver sem var nýbúinn að ráða sig til fyrirtækisins þegar stórt útkall kom. Þann 24. mars 2015 fékk Mark skilaboð í síma sinn frá breska ríkisútvarpinu, BBC, þess efnis að farþegaflugvél Germanwings, á leið frá Barcelona til Dusseldorf, hefði brotlent í Frönsku Ölpunum. Síðar kom í ljós að aðstoðarflugmaður vélarinnar, Andreas Lubitz, hafði brotlent vélinni viljandi með þeim afleiðingum að allir um borð, 150 manns, létust.

„Ég staldraði við og las fréttina og velti fyrir mér hvort kallið myndi koma.“

„Ég staldraði við og las fréttina og velti fyrir mér hvort kallið myndi koma,“ sagði Mark í viðtali við Telegraph. Mark er fyrrverandi rannsóknarlögreglumaður hjá lögreglunni í Humberside á Englandi og sérfræðingur í að bera kennsl á látna einstaklinga. Hann vann til dæmis við að bera kennsl á fórnarlömb þjóðarmorðanna í Kosovo á tíunda áratug liðinnar aldar.

Þess var ekki langt að bíða að kallið kæmi og fékk Mark það hlutverk að ferðast til Barcelona þar sem hann sá um að koma upp upplýsingamiðstöð fyrir aðstandendur þeirra sem létust. 51 Spánverji var um borð. Þegar því var lokið hafði Mark yfirumsjón með símaveri Lufthansa, eiganda Germanwings, sem komið var upp í Liverpool fyrir aðstandendur þeirra sem létust. „Ef þú veist að ástvinur þinn var um borð þá viltu vita hvað gerðist og hvað gerist næst. Okkar hlutverk er að tryggja að það sé alltaf einhver sem svarar í símann, allan sólarhringinn, og það sé alltaf einhver sem talar þitt tungumál, sama hvaða tungumál það er,“ sagði Oliver.

Sefur vel

Robert segir að starfið hafi kennt honum ýmislegt um það hvernig eigi að bregðast við þegar ósköpin dynja yfir. Hann bendir til dæmis á að fólk ætti ekki að blása upp björgunarvesti inni í flugvélinni ef hún nauðlendir á vatni eða hafi. Hann hafi fundið látna einstaklinga inni í flugvélum sem komust ekki út. Þegar öllu er á botninn hvolft segir Robert það gagnast honum lítið að vera kvíðinn eða óttasleginn þegar hann heyrir fréttir af hamförum eða hryðjuverkum. Hann kveðst sofa vel á næturnar en viðurkennir þó að hann líti lífið örlítið öðrum augum eftir allt sem hann hefur upplifað í starfi sínu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Ásdís Rán svaraði Heimi Má – „Ekki segja að ég geti það ekki, ég er hér núna“

Ásdís Rán svaraði Heimi Má – „Ekki segja að ég geti það ekki, ég er hér núna“
Fréttir
Í gær

Íslenska lögreglan tók niður síðu hjá rafmyntasvindlurum – Gætu fengið 20 ára fangelsi

Íslenska lögreglan tók niður síðu hjá rafmyntasvindlurum – Gætu fengið 20 ára fangelsi