fbpx
Sunnudagur 28.apríl 2024
FókusKynning

Hvað virkar gegn kvefi?

Engin áhrifarík lækning er til en hægt er að gera ýmislegt til að gera líkamann betur undirbúinn

Einar Þór Sigurðsson
Laugardaginn 14. janúar 2017 15:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kvef er þrálátur gestur sem enginn kemst hjá að glíma við. Stundum er sagt að ýmis vítamín, steinefni eða önnur efni geti gagnast í baráttunni gegn kvefi en besta forvörnin er eins og ávallt heilbrigður lífsstíll og bólusetning gegn inflúensusmiti. Doktor.is tók saman ýmsar gagnlegar upplýsingar um kvef, hvað gagnast gegn kvefi og hvað gagnast ekki.

C-vítamín
Margir trúa því að með því að taka inn háskammta af C-vítamíni geti þeir komið í veg fyrir kvef en sú virðist þó ekki vera raunin. Í samantekt sem gerð var árið 2007 á 30 rannsóknum með um 11.000 þátttakendum var niðurstaðan sú að regluleg neysla á C-vítamíni hafði engin áhrif á tíðni kvefs en daglegur skammtur af C-vítamíni virðist hafa einhver áhrif á það hve lengi viðkomandi var með kvef og hve mikil einkennin voru ( þ.e. neysla á C-vítamíni virðist stytta tímann og draga úr einkennum í einhverjum mæli) en áhrifin reyndust afar lítil.

Sólhattur
Það er trú margra að sólhattur hafi áhrif á ónæmiskerfið en rannsóknir hafa ekki getað sýnt fram á það. Rót, fræ og aðrir hlutar plöntunnar eru notaðir til að búa til jurtalyf sem margir trúa að verji þá gegn kvefsmiti.

Rannsóknir hafa verið gerðar til að reyna að sýna fram á virkni sólhatts en niðurstöðurnar hafa ekki reynst afgerandi. Samantekt á rannsóknum varðandi sólhatt sýndi til dæmis að ef bornir voru saman hópar fólks sem tók sólhatt og fólks sem ekki gerði það þá kom í ljós að þeir sem tóku sólhatt inn voru um 30 prósent ólíklegri til að fá kvef. Hins vegar voru niðurstöður þessara rannsókna mjög misvísandi og mismunandi útgáfur af sólhatti voru notaðar og ekki vitað hvernig þær virka í samanburði við það sem fæst úti í búð. Þessi samantekt sýndi einnig fram á að inntaka á sólhatti hafði engin áhrif á tímalengd kvefsins. Þannig virðist sólhattur koma að takmörkuðu gagni en ef fólk hefur trú á því þá skaðar ekki að taka hann inn.

Sink
Vísbendingar hafa komið fram um að með því að taka inn sink um leið og kvefeinkenni gera vart við sig sé hægt að draga úr tímalengd kvefsins. Hins vegar eru einnig til rannsóknir sem sýna fram á að svo sé ekki og enginn munur var á tímalengd kvefs þegar bornir voru saman hópar fólks sem tóku eða tóku ekki inn sink.

Því hefur einnig verið haldið fram að sink myndi vörn á slímhúð í nefi og því geti nefúði með sinki komið í veg fyrir að kvefvírusinn nái fótfestu en rannsóknir hafa ekki getað sýnt fram á þetta.

Að verða kalt eða blotna
Það eina sem getur valdið kvefi eða flensu er kvef eða flensuveira. Það að verða kalt og /eða blautur orsakar ekki veikindi. Hins vegar ef viðkomandi er með vírusinn í nefslímhúðinni getur það að verða kalt aukið líkurnar á að ónæmiskerfið ráði ekki niðurlögum vírussins og viðkomandi fær kvef. Rannsókn var gerð þar sem hópur fólks var látinn vera með bera fætur í köldu vatni í 20 mínútur og var það tvisvar sinnum líklegra til að fá kvef en samanburðarhópur sem kældi ekki fæturna. Líklegasta orsökin var talin sú að fólk getur borið með sér kvefvírus í nefslímhúð án þess að veikjast eða fá kvefeinkenni. Þegar okkur verður kalt dragast æðarnar í okkur saman og það hefur áhrif á varnir líkamans og vírusinn á auðveldara með að fjölga sér og valda þannig einkennum.

Hvað virkar þá?
Bólusetning gegn inflúensu gefur vörn fyrir inflúensusmiti. Að öðru leyti er besta vörnin fólgin í heilbrigðum lífsstíl. Með því að borða hollan mat, hreyfa sig reglulega og halda sér heitum yfir köldustu vetrarmánuðina eflum við ónæmiskerfið og það verður betur í stakk búið til að berjast gegn smiti. Kvefveirur eru fjölmargar, finnast víða og smitast auðveldlega svo við munum fá kvef af og til og engin áhrifarík lækning er til.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum