fbpx
Sunnudagur 22.júní 2025
Eyjan

Barnaheill og Blátt áfram sameinast

Ritstjórn Eyjunnar
Þriðjudaginn 5. mars 2019 13:20

Stjórn Barnaheilla: Á myndinni eru f.v. Páll Valur Björnsson, Erna Reynisdóttir, Áslaug Björgvinsdóttir, Anni Haugen, Guðlaugur Kristmundsson, Harpa Rut Hilmarsdóttir, Atli Þór Albertsson, Brynja Dan Gunnarsdóttir, Helga Arnardóttir, Jón Ragnar Jónsson og Guðmundur Steingrímsson.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stjórnir Barnaheilla og Blátt áfram hafa tekið þá ákvörðun að sameina krafta sína undir nafni Barnaheilla – Save the Children á Íslandi.  Verkefni Blátt áfram verða því hluti af þeirri starfsemi Barnaheilla sem snýr að vernd barna gegn ofbeldi, samkvæmt tilkynningu.

„Tilgangurinn er að samnýta krafta beggja samtaka að því sameiginlega markmiði að berjast gegn ofbeldi á börnum.  Verkefni Blátt áfram munu því áfram snúast um vernd gegn ofbeldi á börnum.  Þau felast að stærstum hluta í vitundarvakningu, fræðslu og forvörnum á því sviði.  Samtökin vilja með þessu sýna gott fordæmi og trúa því að sameinuð séu þau sterkari rödd og öflugra hreyfiafl með þekkingu og reynslu innanborðs. Þau geti því frekar náð fram enn meiri árangri í baráttunni gegn ofbeldi á börnum en hingað til,“

segir í tilkynningu.

Sífellt leitað leiða

„Við teljum þetta vera mikilvæg skilaboð til samfélagsins um að við séum sífellt að leita leiða til að verða enn sterkari málsvari barna. Með þessu skrefi er verið að samnýta krafta og þekkingu félaganna, með sameinuðum kröftum erum við enn öflugri málsvarar fyrir börn. Barnaheill eru virt samtök á alþjóðavísu og við teljum að verkefni Blátt áfram muni dafna innan raða Barnaheilla,”

segir Sigríður Björnsdóttir formaður Blátt áfram.

„Barnaheill verða áfram ein öflugustu frjálsu félagasamtökin á Íslandi sem vinna að vernd barna gegn ofbeldi og forvörnum á því sviði.  Blátt áfram hafa unnið gríðarlega gott starf varðandi vernd gegn kynferðisofbeldi á börnum. Við erum mjög stolt af því að þau sameini starfsemi sína Barnaheillum,”

segir Harpa Rut Hilmarsdóttir formaður Barnaheilla.

Framkvæmdastjóri Barnaheilla verður áfram Erna Reynisdóttir en við starfslið Barnaheilla bætast þrír starfsmenn frá Blátt áfram. Starfsemi samtakanna verður fyrst um sinn á tveimur starfsstöðum, á Háaleitisbraut 13 og í Fákafeni 9 en stefnt er að flutningi í sameiginlegt húsnæði síðar á árinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 2 dögum
Enn eru fornmenn á ferð
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Eldhúsdagurinn afhjúpaði harðlínu andstöðunnar

Sigmundur Ernir skrifar: Eldhúsdagurinn afhjúpaði harðlínu andstöðunnar
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Ofbeldi í nánum samböndum

Óttar Guðmundsson skrifar: Ofbeldi í nánum samböndum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Obba og Hanna sýna á sér aðra hlið – Ekki gott að lenda á eftir Þorgerði Katrínu í ræðustól af einfaldri ástæðu

Obba og Hanna sýna á sér aðra hlið – Ekki gott að lenda á eftir Þorgerði Katrínu í ræðustól af einfaldri ástæðu
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Andlitin sem enginn man

Nína Richter skrifar: Andlitin sem enginn man