fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Fréttir

Jón Trausti sá mann draga upp hníf í Kringlunni í gær

Ágúst Borgþór Sverrisson
Sunnudaginn 3. mars 2019 09:10

Jón Trausti Reynisson.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í gær var sagt frá því í fréttum að maður hefði dregið upp hníf í verslunarmiðstöð og verið handtekinn skömmu síðar. Jón Trausti Reynisson, ritstjóri Stundarinnar, varð vitni að atvikinu sem var mjög sérstætt en á meðan þessu fór fram var hann að reyna að skipta út myndlykli í Vodafone. Örvæntingarfullur maðurinn náði engri athygli starfsfólks eða viðskiptavina í Kringlunni þar til lögreglan kom á vettvang. Svo virðist sem hann hafi ætlað að svipta sig lífi.

Frá sögn Jóns Trausta af atvikinu er eftirfarandi:

Ég var í Vodafone í Kringlunni í dag til að segja upp áskrift minni að Stöð 2 Maraþon sem ég veit hreinlega ekki hvernig hófst, og skipta út myndlykli fyrir annan sem krefst þess ekki að tvíþrýsta á takkana og bíða í sekúndur tvær til að skipta um stöð, þegar tveir menn komu inn. Annar þeirra benti á gólfið og sagði:

„Vinur minn ætlar að svipta sig lífi hérna á gólfinu.“

Honum var mætt af fálæti, kannski vegna þess að hann hafði ekki tekið miða eins og við hin. Ég var númer þrettán.

„Hann er með hníf!“ bætti hann við.

Ég spurði hvort ég gæti keypt myndlykilinn, í staðinn fyrir að borga meira en tvö þúsund krónur á mánuði í leigu af honum. Hún sagði að það yrði mjög dýrt, en komst svo að því að það væri ekki hægt.

24 þúsund krónur á ári í leigu.

Samt er sjálfsábyrgðin bara 14 þúsund.

Vinurinn, síðhærður og svolítið skjögrandi skjálfhentur, dró upp stóran vasahníf, opnaði hann og mundaði skringilega ánægður með sig.

Konan sat við afgreiðsluborðið og sýndi engin viðbrögð við atburðunum nokkrum skrefum á bakvið hana. Hún sagði mér að ég þyrfti síðan að skila fjarstýringunni af gamla myndlyklinum. „Hún er svolítið brotin,“ sagði ég, réttilega, í von um að þurfa ekki að fara aftur líkamlega í Vodafone. Lokið fyrir batteríin var auðvitað brotið, eins og gengur og gerist með fjarstýringar, og því bjargað með límbandi, eins og er gert, eftir að þau rúlluðu ítrekað út um allt. En Vodafone vill fá fjarstýringuna sína aftur, og snúruna sem vantaði. 

Kannski hefur Nova rétt fyrir sér. Myndlykill er risaeðla. Þetta er allt á netinu.

Síðhærði gaurinn státaði af hnífnum eins og Óskarsstyttu. En hann fékk enga athygli, þrátt fyrir að hafa lofað svakalegum performans.

Konan hunsaði tilraunir mínar til að leiða athyglina að hnífamanninum. Það skyldi ekki skipta um leikrit. Það var eins og hann væri ekki þarna. Enda er lykilmarkmið Vodafone að auka ánægju viðskiptavina sinna, samkvæmt siðreglum fyrirtækisins. Enginn brást við hnífamanninum, nema annar viðskiptavinur sem starði á hann. Mér sýndist hann vera ferðamaður.

Ég hafði áhyggjur af ferðamanninum. Kannski bara vegna þess að hann væri ferðamaður. Ef hann var það. Að hann héldi að þetta væri jafnalvarlegt og í útlöndum þegar einhver dregur upp hníf í verslunarmiðstöð. Að hann myndi ekki upplifa Ísland öruggasta land í heimi, sem það er. Það ofan á óvissuna með WOW.

Gaurinn gekk áfram með hnífinn eins og fánastöng á opnunarhátíð Ólympíuleikanna. Stoltur og brosandi. En samt eins hann myndi ekki standast lyfjapróf.

Ég fylgdist með honum ganga fram hjá mér og á bakvið mig, með heppilegustu viðbrögðin við hnífaárás á bakvið eyrað.
„Get ég skipt um þjónustuleið og sparað eitthvað á því?“ spurði ég. Sá svo að mér og áréttaði: „Ég get alveg gert það á netinu, sent tölvupóst eða eitthvað.“ Vodafone býður nefnilega upp á netspjall. Kannski get ég líka sent fjarstýringuna með bréfpósti. Svo einhver geti notið þjónustu hennar í framtíðinni í leigu frá Vodafone.

Gaurarnir voru svolítið eins og náungarnir sem hengu á vídeóleigum í gamla daga. Eins og persónur í Kevin Smith mynd. Ef einhver veit hvað það er. Mallrats, frá 1995. En núna er það bara Leigan hjá Vodafone. Og hver fer í Kringluna á sólardegi? Verslunarmiðstöðvarnar eru að deyja. Við getum gert þetta allt á netinu. Ég fór í bankann í Kringlunni um daginn. Og var afgreiddur í klefa í gegnum Skype. Ekki skrítið að samkvæmt skýrslu ríkisstjórnarinnar muni þriðja hvert starf hverfa á næstu árum.

En maðurinn með hnífinn, hann fékk loksins athyglina sem hann vantaði þegar lögreglan hafði afskipti af honum nokkru síðar, samkvæmt fréttatilkynningu, og bað hann að afhenda hnífinn, sem hann gerði. Hann ógnaði engum. Hann vildi bara vera séður.

Eftir að ég kom út aftur í sólina fékk ég tölvupóst frá Vodafone. „Var heimsóknin ánægjuleg?“

Ég held það bara. Ég tel að það sé verið að svindla á okkur með myndlyklaleigunni, en upplifunin af manninum með hnífinn eins ánægjuleg og hún gat verið. Stundum eru viðbrögðin verri en það sem brugðist er við. Það versta sem við gerum er að óttast annað fólk. En kannski ættum við að gera minna af því að hunsa fólk. Kannski einmitt þannig mun hatrið ekki sigra.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Mega ekki láta leigjandann borga fyrir málunina

Mega ekki láta leigjandann borga fyrir málunina
Fréttir
Í gær

Guðmundur Ingi lýsir afleiðingum af veikindunum – „Þarf þetta að vera svona?“

Guðmundur Ingi lýsir afleiðingum af veikindunum – „Þarf þetta að vera svona?“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir að Íslendingar ættu að vera sérlega stoltir af körfuboltalandsliðinu

Segir að Íslendingar ættu að vera sérlega stoltir af körfuboltalandsliðinu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dómari segir að Barbara hefði þurft að selja blíðu sína 12 manns til að fullyrðing Margrétar stæðist

Dómari segir að Barbara hefði þurft að selja blíðu sína 12 manns til að fullyrðing Margrétar stæðist