fbpx
Fimmtudagur 26.júní 2025
Fréttir

Stefán Eiríksson ráðinn borgarritari

Verður æðsti embættismaður borgarinnar að borgarstjóra undanskildum

Einar Þór Sigurðsson
Fimmtudaginn 22. desember 2016 14:54

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Borgarráð samþykkti í dag að ráða Stefán Eiríksson í starf borgarritara. Stefán hefur starfað sem sviðsstjóri velferðarsviðs frá 1. september 2014 en hann hafði áður starfað sem lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins frá árinu 2007. Borgarritari er æðsti embættismaður borgarinnar að undanskildum borgarstjóra og einn af staðgenglum hans.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Á árunum 2002- 2006 starfaði Stefán sem skrifstofustjóri og staðgengill ráðuneytisstjóra dóms- og kirkjumálaráðuneytis, á árunum 2007-2014 sem lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins og frá 2014 sem sviðsstjóri velferðarsviðs. Stefán lauk embættisprófi í lögfræði (Cand.jur) frá Háskóla Íslands í febrúar 1996 og hdl. 1997 og hefur hann sótt fjölda námskeiða, sinnt kennslu í lögfræði á háskólastigi og verið fyrirlesari á ýmsum vettvangi, m.a. í opinberri stjórnsýslu við Háskóla Íslands.

„Stefán var talinn uppfylla allar þær kröfur sem gerðar eru til borgarritara. Á sama tíma og Stefáni er óskað farsældar í starfi er öðrum umsækjendum þakkaður sýndur áhugi og óskað velfarnaðar,“ segir í tilkynningunni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Frá Kyrrahafi til Kalíningrad – Rússar eru hvergi öruggir

Frá Kyrrahafi til Kalíningrad – Rússar eru hvergi öruggir
Fréttir
Í gær

Persneskumælandi Ísraelsmenn hringdu í íranska hershöfðingja – „Við erum nær þér en hálsslagæðin“

Persneskumælandi Ísraelsmenn hringdu í íranska hershöfðingja – „Við erum nær þér en hálsslagæðin“
Fréttir
Í gær

Páll segir borgarráð sýna sögu og menningu virðingarleysi og hunsa mótmæli íbúa – „Í stuttu máli er þetta leikrit“

Páll segir borgarráð sýna sögu og menningu virðingarleysi og hunsa mótmæli íbúa – „Í stuttu máli er þetta leikrit“
Fréttir
Í gær

Typpamynd af fyrrum eiginmanni tekin fyrir á þremur dómstigum og nú aftur í héraðsdómi – „Þú ert viðbjóður“

Typpamynd af fyrrum eiginmanni tekin fyrir á þremur dómstigum og nú aftur í héraðsdómi – „Þú ert viðbjóður“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dómur fallinn yfir Sigurði Fannari – Varð dóttur sinni að bana á Krýsuvíkurvegi

Dómur fallinn yfir Sigurði Fannari – Varð dóttur sinni að bana á Krýsuvíkurvegi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Jón Viðar botnar ekkert í Ingu Sæland: „Hef ég misskilið eitthvað, Inga?!“

Jón Viðar botnar ekkert í Ingu Sæland: „Hef ég misskilið eitthvað, Inga?!“