fbpx
Mánudagur 15.desember 2025
433Sport

Harkaleg slagsmál á miðri jóga æfingu

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 15. janúar 2019 10:18

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Aleksandar ­Mitrovic og Aboubakar Kamara eru ekki neinir vinir þrátt fyrir að spila með sama liðinu, Fulham. Þeir félagar hata hvorn annan og hafa gert síðustu vikur.

Allt byrjaði það þegar Kamara reif boltann af Mitrovic geng Huddersfield í ensku úrvalsdeildinni og tók vítapsyrnu. Claudio Ranieri hafði skipað að Mitrovic tæki spyrnuna en Kamara var sama, hann ætlaði að taka hana. Hann tók spyrnuna og klikkaði, hann hefur ekki fengið frið síðan.

Í síðustu viku voru leikmenn Fulham sendir í jóga og þar gjörsamlega sprakk allt, Mitrovic taldi Kamara vera með dónaskap við kennarann.

Hann sagði honum til syndanna með þeim afleiðingum að allt sauð upp úr og þeir fóru að slást. Þeir tóku hvorn annan hálstaki og öskruðu á hvorn annan.

Leikmenn Fulham voru hissa enda átti stundin að vera róleg og notalegt, liðið er í mikilli fallbaráttu og átti þetta að reyna hjálpa leikmönnum liðsins að ná ró og frið í líkama sinn.

Það heppnaðist ekki vel en ljóst er að Ranieri þarf að ná að róa þessa félaga í ensku úrvalsdeildinni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Segist hafa fundið fyrir mikilli pressu eftir áhuga United í sumar

Segist hafa fundið fyrir mikilli pressu eftir áhuga United í sumar
433Sport
Í gær

Vilja kaupa sóknarmann Tottenham í janúar

Vilja kaupa sóknarmann Tottenham í janúar
433Sport
Fyrir 2 dögum

Kemur Gyokeres til varnar

Kemur Gyokeres til varnar
433Sport
Fyrir 2 dögum

Albert uppljóstrar um nöfn stórliða sem drógu sig úr viðræðum við hann eftir að kærumálið kom upp

Albert uppljóstrar um nöfn stórliða sem drógu sig úr viðræðum við hann eftir að kærumálið kom upp
433Sport
Fyrir 2 dögum
Salah snýr aftur