Hátíðarkvöldverður Klúbbs matreiðslumeistara var haldinn í Hörpu í gærkvöldi, en kvöldverðurinn er til styrktar kokkalandsliðinu.
Kvöldverðurinn var stjörnum prýddur en veislustjórar kvöldsins voru Bergþór Pálsson og Albert Eiríksson, annálaðir smekkmenn og matgæðingar. Má með sanni segja að Bergþór hafi stolið senunni þetta kvöld þegar hann tók hommalagið svokallaða úr áramótaskaupinu.
Meðal annarra gesta voru leikarinn Atli Þór Albertsson, söngkonan Þórdís Imsland, Nylon-dísin Camilla Stones og Eurovision-farinn og stórstjarnan Svala Björgvinsdóttir, sem jafnframt tók lagið á viðburðinum. Með henni í för var kærasti hennar, Gauti Sigurðsson, og skein ástin úr augum þeirra, en þau byrjuðu saman seint á síðasta ári.
Þá tók Júníus Meyvant einnig lagið við mikinn fögnuð viðstaddra.
Hér fyrir neðan má sjá kynningarmyndband fyrir kvöldverðinn þar sem farið er yfir matseðilinn, sem var vægast sagt glæsilegur.