fbpx
Sunnudagur 18.maí 2025
Pressan

Brann inn að beini en er í dag sátt í eigin skinni

Erla Dóra Magnúsdóttir
Sunnudaginn 30. desember 2018 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sasha Pugsley lenti í skelfilegu slysi níu ára gömul þegar bensíntankur sprakk. Hún brann illa í slysinu og hefur þurft að undirgangast margar aðgerðir vegna þess.  Í dag er hún ánægð í eigin líkama og tekur þátt í verkefninu Bak við örin þar sem hún deilir mynd af örunum hennar og sögu sinni. 

Sasha Pugsley eyddi þremur mánuðum í dái og tveimur árum á sjúkrahúsi eftir að bensíntankur sprakk þar sem hún var að leik aðeins níu ára gömul. Í kjölfarið hefur hún farið í mikinn fjölda aðgerða, meðal annars til að endurbyggja handarkrika hennar því hitinn frá eldinum ollu því að húðin hennar bráðnaði og hendurnar urðu fastar við síður hennar. Í umfjöllun DailyMail segir Sasha:

„Hendurnar mínar brunnu líka inni að beini – ég vaknaði í einni af aðgerðunum og sá þetta allt. Það var skelfilegt.“

Þegar sár hennar höfðu gróið batnaði þó lítið hjá Söshu.

„Sextán ára gamalli var mér sagt að ég myndi ekki fá brjóst eins og hinar stelpurnar í kring um mig því ég hafði brennst svo illa á brjóstkassanum.“

Vegna þessa fór Sasha þrisvar sinnum í fitusog þar sem fita af baki hennar var fjarlægð og nýtt til að reyna að byggja upp brjóst.

Þegar Sasha varð eldri ákvað hún loks að hætta öllum aðgerðum og hefur síðan þá lært að elska líkama sinn eins og hann er.

Í dag er Sasha orðin móðir og vill hún vera syni sínum gott fordæmi.

„Hann er svo dásamleg manneskja og er með hjarta úr gulli. Ég vil virkilega vera honum góð fyrirmynd. “

Sasha opinberaði örin í tengslum við samfélagsmiðlaverkefni sem kallast Bak við örin sem er á vegum ljósmyndarans Sophie Mayanne og hófst í apríl 2017.

Sophie hefur tekið fleiri en 300 myndir af örum og sögum og vonast til að stuðla að jákvæðri líkamsmynd manna, kvenna og barna allstaðar í heiminum.

„Þetta hófst sem lítil rannsókn á örum en hefur núna vaxið yfir í valdeflandi verkefni um jákvæða líkamsmynd.“

Sophie hefur nú hafið fjáröflun til að geta haldið verkefninu áfram.

Við færslu verkefnisins um Söshu á Instagram segir meðal annars:

„Þau einföldu mistök, að vera á röngum stað á röngum tíma, leiddu til þess að lífið mitt breyttist að eilífu þegar bensíntankur sprakk. Eftir ríflega sextíu aðgerðir til að endurbyggja líkama minn er ég hér í dag. Sem kona á þrítugsaldri í samfélagi sem er gagntekið af útliti hef ég fengið vettvang til að öskra að gallar eru líka fallegir. Örin mín segja söguna mína af erfiðleikum og sorg sem hafa skapað þá fallegu konu sem ég er í dag. Örin mín bera vitni um að ég lifði af.“

https://www.instagram.com/p/BrV6MyPl6zJ/

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Dældi skilaboðum yfir konu og hvatti hana til að fyrirfara sér svo hann gæti fylgst með

Dældi skilaboðum yfir konu og hvatti hana til að fyrirfara sér svo hann gæti fylgst með
Pressan
Í gær

Sendi skilaboð til Trumps áður en hann var tekinn af lífi

Sendi skilaboð til Trumps áður en hann var tekinn af lífi
Pressan
Fyrir 2 dögum

Heyrir iPhone brátt sögunni til? – Yfirmaður Apple gaf það í skyn

Heyrir iPhone brátt sögunni til? – Yfirmaður Apple gaf það í skyn
Pressan
Fyrir 2 dögum

7 ára stúlka fannst í skáp – Hafði verið svelt – Leita nú að systur hennar sem hefur ekki sést síðan 2017

7 ára stúlka fannst í skáp – Hafði verið svelt – Leita nú að systur hennar sem hefur ekki sést síðan 2017
Pressan
Fyrir 3 dögum

Hraðamyndavél náði mynd af óvenjulegu broti

Hraðamyndavél náði mynd af óvenjulegu broti
Pressan
Fyrir 3 dögum

Fór út að skemmta sér – Vaknaði næsta dag nakinn, aleinn og búið að stela peningunum hans

Fór út að skemmta sér – Vaknaði næsta dag nakinn, aleinn og búið að stela peningunum hans
Pressan
Fyrir 3 dögum

Fengu áfall þegar þau sneru heim úr þriggja vikna fríi og sáu manninn sem sat í sófanum

Fengu áfall þegar þau sneru heim úr þriggja vikna fríi og sáu manninn sem sat í sófanum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Segir fólk ekki eiga að hlusta á hann til að fá læknisfræðilega ráðgjöf

Segir fólk ekki eiga að hlusta á hann til að fá læknisfræðilega ráðgjöf