Bandaríska fyrirsætan, frumkvöðullinn og Instagram-stjarnan Blac Chyna er stödd á Íslandi. Hún birti mynd af sér á Instagram í Bláa lóninu í morgun og þykir nokkuð ljóst á hún dvelur í einni af lúxussvítum hótelsins við lónið.
Blac Chyna er þekkt í skemmtanabransanum. Hún er með tæplega 15 milljónir fylgjenda á Instagram og á hún dóttur með Rob Kardashian, bróður Kardashian-systra, sem kom í heim fyrir tveimur árum. Þar áður var hún með tónlistarmanninum Tyga og eiga þau son saman sem fæddist árið 2012.
Blac Chyna, sem heitir réttu nafni Angele Renée White, er þrítug en hún stofnaði snyrtivörufyrirtæki árið 2014, Lashed by Blac Chyna. Eru auðæfi hennar metin á nokkur hundruð milljónir króna.