fbpx
Föstudagur 27.júní 2025
FókusKynning

Frábær gjöf fyrir tónelska

Kynning

Gjafabréf frá Hljóðver.is

Ágúst Borgþór Sverrisson
Laugardaginn 19. nóvember 2016 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hljóðver.is er vettvangur fyrir bæði atvinnumenn í tónlist og áhugafólk til að taka upp efni sitt. Einnig eru þar unnar alls konar upptökur með innlestri og auglýsingum. Sífellt færist í vöxt að söngelskt fólk láti drauminn um að fullvinna lag rætast og leiti til Hljóðvers.is þar sem lagið er hljóðblandað á geisladisk. Einnig er hægt að skila afurðinni af sér á rafrænu formi og gera úr henni til dæmis myndband á Youtube.

Gjafabréf frá Hljóðver.is eru vinsæl gjöf, bæði sem jólagjöf og afmælisgjöf á stórafmælum. Ef þú átt söngelskan ættingja eða vin er þetta frábær leið til að gera viðkomandi kleift að láta draum sinn rætast og stíga næsta skref á tónlistarbrautinni.

Sem fyrr segir er algengt að einstaklingar leiti til Hljóðvers.is til að fullvinna lög en einnig er vinsælt hjá ýmsum hópum að leita til hljóðversins til að fullvinna efni. Þannig eru oft tekin upp lög eða önnur atriði fyrir brúðkaup og stórafmæli. Þá færist sífellt í vöxt að fyrirtækjahópar leiti til hljóðversins og taki upp atriði fyrir starfsmannaskemmtanir eða hópeflissamkomur.

Á heimasíðu Hljóðvers.is segir meðal annars um starfsemina:
„Við veitum góða þjónustu fyrir allar almennar upptökur og hljóðvinnslu, hvort sem um er að ræða upptökur á grunnum eða fullvinnslu tónlistar til útgáfu og flutnings í útvarpi. Tökum einnig að okkur að vinna lög frá grunni eftir óskum. Ef þú ert lagasmiður og átt jafnvel aðeins lag á textablaði þá getum við hjálpað þér að útsetja og fullvinna lagið frá grunni og getum útvegað hljóðfæraleikara eftir þörfum.

Upptökurýmið er einstaklega vel hannað með stillanlegum hljóm-panelum. Þannig næst góður hljómburður bæði til að ná hlýjunni úr acoustic-hljóðfærum eða vel dempuðum hljómburði fyrir t.d. popp/rokk trommur. Jafnframt er möguleiki á að taka upp samtímis í tveimur öðrum rýmum samhliða upptökurýminu. T.d. fyrir bassa/gítarmagnara samhliða trommuupptökum. Stjórnrýmið er rúmgott með góðri vinnuaðstöðu sem hentar vel fyrir hljóðblöndun. Þar er einnig góð aðstaða fyrir hlustun.“

Hljóðver.is er til húsa að Langholtsvegi 60, 104 Reykjavík. Símanúmer er 896-1013 og netfang jonas@hljodver.is. Gott er að hringja eða senda tölvupóst til að panta upptökutíma eða kaupa gjafabréf. Nánari upplýsingar um starfsemina eru á vefsíðunni www.hljodver.is.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
09.10.2024

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV
KynningMatur
28.07.2024

Ný ásýnd Orku rakar inn verðlaunum

Ný ásýnd Orku rakar inn verðlaunum
Kynning
08.06.2024

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu
Kynning
06.06.2024

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn
Kynning
29.03.2024

„Sauna hækkar hjartsláttinn, eykur vellíðan, þú sefur betur. Saunað hreinsar allt út“

„Sauna hækkar hjartsláttinn, eykur vellíðan, þú sefur betur. Saunað hreinsar allt út“
Kynning
27.03.2024

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 
Kynning
14.02.2024

Brimborg frumsýnir nýjan Peugeot E-208 – Kraftmeiri, meiri drægni og ómótstæðilega skemmtilegur í akstri

Brimborg frumsýnir nýjan Peugeot E-208 – Kraftmeiri, meiri drægni og ómótstæðilega skemmtilegur í akstri
Kynning
26.01.2024

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7