fbpx
Sunnudagur 28.apríl 2024
Fréttir

Skip Ásbjarnar landar ítrekað umfram burðargetu

Stýrir verkefnisstjórn um öryggi – Banaslys vegna ofhleðslu- Landlægt vandamál

Kristinn H. Guðnason
Laugardaginn 24. febrúar 2018 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ofhleðsla skipa er landlægt vandamál á Íslandi og til stendur að gera hana refsiverða í kjölfar banaslyss. Ásbjörn Óttarsson, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, er formaður verkefnisstjórnar á vegum samgönguráðuneytisins um öryggi sjófarenda sem styður þá tillögu. Skip í eigu Nesvers, fyrirtækis Ásbjarnar, er hins vegar sjálft að koma ítrekað með umframhleðslu í land.

Einn lést þegar Jóni Hákoni hvolfdi

Um hádegið þann 6. júlí árið 2015 fór báturinn Jón Hákon BA 60 úr höfn í Patreksfirði og stefndi á dragnótaveiðar við norðanverða Vestfirði. Fyrsta halið sem báturinn tók inn var 3,5 tonn af ýsu og gekk veiðin vel. Skipverjar veiddu alla nóttina og var síðasta halið tekið inn klukkan sjö um morguninn. Þá var tíu metra vindur og smá veltingur með stjórnborðsslagsíðu. Talsverður sjór var kominn inn á þilfar og í einni veltunni flæddi sjór yfir borðstokkinn stjórnborðsmegin. Enn meira flæddi í næstu veltu og lagðist báturinn þá á hliðina. Þá áttuðu skipverjar sig á því að bátnum myndi hvolfa.

Þröstur Leó Gunnarsson leikari var um borð í bátnum og náði að komast nærri þurrum fótum yfir á kjölinn þegar bátnum hvolfdi. Gat hann þá aðstoðað tvo félaga sína, sem höfðu lent í sjónum, upp á kjölinn sem varð þeim sennilega til lífs.

Jón Hákon hvarf úr vöktunarkerfinu og var annar bátur sendur til að athuga með hann. Þá fannst Jón Hákon á hvolfi og þrír af fjórum skipverjum héngu á kilinum. Höfðu þeir þá hafst þar við í um það bil klukkustund. Fjórði skipverjinn, Magnús Kristján Björnsson, fannst látinn á floti skammt frá. Tíu mínútum síðar sökk Jón Hákon til botns.

Bjargaðist þegar Jón Hákon fórst.
Þröstur Leó Gunnarsson Bjargaðist þegar Jón Hákon fórst.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Skortir refsiheimildir vegna ofhleðslu

Ýmislegt fór úrskeiðis í tilfelli Jóns Hákons. Tveir björgunarbátar og sjálfvirkur sleppibúnaður virkuðu ekki, staðsetningarbúnaður var gallaður og erfiðlega gekk að koma skilaboðum til nærliggjandi báta. Ástæðan fyrir því að báturinn sökk er hins vegar sú að hann var ofhlaðinn og með viðvarandi stjórnborðshalla. Rannsóknarnefnd samgönguslysa tók málið til skoðunar og skilaði af sér skýrslu í mars árið 2017.

Þann 15. febrúar árið 2017 munaði minnstu að annar bátur, Hjördís HU 16, færist vegna ofhleðslu. Hjördís var á veiðum á Breiðafirði og fór að taka inn á sig sjó. Sent var út neyðarkall en báturinn rétti sig af þegar skorið var á línuna. Hjördís er 10 brúttótonna bátur og umframhleðslan reyndist 4,5 tonn. Skipstjóri taldi það þó ekki vera ofhleðslu.

Jón Bernódusson hjá Samgöngustofu segir að brúttótonnin gefi nokkuð góða mynd af því hversu hlaðinn báturinn má vera: „Ef þú ert með bát sem er skráður á fimmtán brúttótonn þá getur þú alltaf sett fimmtán tonn í hann en þú átt ekki að fara mikið yfir það. Þá verðum við að taka allt með í reikninginn: aflann, balana, olíuna, vistirnar, mannskapinn um borð og margt fleira.“

Vandamálið segir Jón hins vegar vera að það eru engar refsiheimildir til við þessu. Þann 5. september skilaði Rannsóknarnefnd samgönguslysa af sér tillögum að öryggissátt til að taka á ofhleðslu skipa. Fyrsta tillaga nefndarinnar var að það yrði gert afdráttarlaust refsivert að ofhlaða fiskiskip og eftirlit með því tryggt.

Greiddi sér ólöglegan arð

Tillögur rannsóknarnefndarinnar voru studdar af verkefnisstjórn um öryggi sjófarenda með nokkrum fyrirvörum þó. Í stjórninni sitja fulltrúar ýmissa hagsmunaaðila, svo sem Landsbjargar, Landhelgisgæslunnar, Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi og Sjómannasambandinu. Skipaður formaður er Ásbjörn Óttarsson, sem sat á Alþingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn á árunum 2009 til 2013. Árið 2010 var hann mikið í fréttum vegna ólöglegra arðgreiðslna úr útgerðarfélaginu Nesveri ehf. í Snæfellsbæ. Greiddi hann sér tugmilljónir króna þrátt fyrir að eigið fé fyrirtækisins væri neikvætt. Ásbjörn viðurkenndi brotið en sagðist ekki hafa vitað að þetta væri ólöglegt. Sagðist hann jafnframt hafa endurgreitt féð.

Nesver ehf. rekur fiskiskipið Tryggva Eðvarðs SH 002 sem hefur skráða heimahöfn í Rifi á Snæfellsnesi. Skipið er 14,96 brúttótonn af gerðinni Cleopatra 38, framleitt af Trefjum ehf. í Hafnarfirði. Frá Trefjum ehf. fékk DV þau skilaboð að Tryggvi Eðvarðs ætti ekki að vera hlaðinn meira en sem nemur um 15 tonnum.

Landaði 18,6 tonnum 5. janúar.
Tryggvi Eðvarðs SH 2 Landaði 18,6 tonnum 5. janúar.

Landa ítrekað yfir burðargetu

Vel hefur veiðst á Tryggva Eðvarðs undanfarna mánuði en samkvæmt heimildarmanni DV var desemberveiðinni fagnað sérstaklega með kökuboði. Löndunartölurnar benda þó til að skipið hafi komið ofhlaðið í land.

Þann 9. desember kom Tryggvi Eðvarðs með 15,3 tonn af óslægðum afla í land og daginn eftir með 14,8 tonn. 29. desember var metdagur í mánuðinum. Þá landaði skipið tvisvar, 12,5 tonnum í fyrri ferð og 16,6 tonnum í seinni.
Janúarveiðin var ekki síðri og fimmta dag mánaðarins var 18,6 tonnum landað. Í tvö skipti í til viðbótar var landað yfir 15 tonnum af afla. 10. febrúar kom Tryggvi með 17,2 tonn.

Hafa ber í huga að línubátar eru jafnan með á bilinu 30 til 60 bala sem að sögn Jóns Bernódussonar geta vegið samanlagt tvö til þrjú tonn. Þá er ótalin þyngd olíu, bauja, vista, mannskapar og svo framvegis.

„Að vera töffarinn úti á sjó … það er búið“

Hefur áður misst skip

Ekki náðist í Ásbjörn Óttarsson við vinnslu þessarar fréttar þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir, bæði með hefðbundnum leiðum og í gegnum ráðuneytið. Augljóst er að skipið hefur verið að koma í land með meiri hleðslu en burðargetan segir til um. Að öllum líkindum yfir 20 tonn í einu tilfellinu.

Ofhleðsla skipa er töluvert vandamál á Íslandi og hefur valdið banaslysi. Samkvæmt áætlun eiga viðurlög við ofhleðslu að vera innleidd næsta sumar eða haust. Jón Bernódusson segir: „Í gamla daga voru allir bátar með þetta vandamál. Þegar þeir lentu í vandræðum gáfu þeir bara í. Þetta hefur samt lagast mjög mikið með nýjum skipum og það er metnaður þeirra sem eiga bátana að vera með fína báta og hafa þá örugga. Að vera töffarinn úti á sjó … það er búið.“

Ásbjörn Óttarsson og fyrirtæki hans Nesver hafa áður misst skip, en reyndar ekki vegna ofhleðslu. 5,8 tonna færabáturinn Herdís SH var á veiðum úti fyrir Bjargtöngum árið 2009 þegar eldur kom upp í lúkarnum. Tveir menn voru um borð, þar á meðal sonur Ásbjarnar. Var þeim bjargað upp í annað skip en Herdís sökk þegar reynt var að draga hana í land.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Framsóknarmenn styðji ÁTVR og forvarnir – „Atlaga Sjálfstæðisflokksins að ÁTVR er ævintýraleg“

Framsóknarmenn styðji ÁTVR og forvarnir – „Atlaga Sjálfstæðisflokksins að ÁTVR er ævintýraleg“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Pálmatré raunhæft verkefni en aðeins eitt tré mun rísa

Pálmatré raunhæft verkefni en aðeins eitt tré mun rísa
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Grænkerar harma auglýsingar forsetaframbjóðenda – „Borða pulsur úr gösuðum þjáðum svínum“

Grænkerar harma auglýsingar forsetaframbjóðenda – „Borða pulsur úr gösuðum þjáðum svínum“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Mótmælin á Tenerife – Vill ekki ferðamenn með „allt-innifalið“ armbönd

Mótmælin á Tenerife – Vill ekki ferðamenn með „allt-innifalið“ armbönd