Kærasti vaxtaræktarkonunnar Söru Heimisdóttur, vöðvafjallið Chris Miller, er allur braggast eftir að hann var hætt kominn eftir hjartaáfall á dögunum. Sara og Chris eru búsett í Bandaríkjunum en þau hafa verið saman í um tvö ár.
Sara deilir mynd af þeim saman á Instagram-síðu sinni en þau gerðu sér glaðan dag og sáu bíómyndina Venom. Sara segir myndina hafa verið stórgóða og að hún njóti lífsins með ástinni sinni. Chris slær á létta strengi í athugasemdum við myndina af þeim í bíó en þar segir bushmaster933 hann hafa misst vöðvamassa eftir hjartaáfallið. Því svarar Chris: „Ekki það sem það skiptir mál“. Sara tekur undir með honum og segir: „Nei, það hefur hann ekki gert. Hann lítur mjög vel út.“
Líkt og DV greindi frá á dögunum þá var Chris við dauðans dyr en hjartaloka hans hafði nánast verið stífluð til fulls og er ljóst að illa hefði getað farið. Í færslu sinni tekur Sara það sérstaklega fram að ekki sé hægt að kenna sterum um, þó að áralöng þjálfun Chris í vaxta- og líkamsrækt hafi tekið sinn toll af honum. „Læknar telja að um hjartagalla sé að ræða.“
„Ég var mínútum frá því að missa hann. Honum líður betur núna eftir að hafa gengist undir aðgerð og ég er svo stolt af mínum manni,“ sagði Sara á Instagram-síðu sinni. „Ég elska þig af öllu hjarta.“
Sara hefur vakið talsverða athygli á undanförnum árum en hún var eitt sinn eiginkona líkamsræktarmannsins Rich Piana. Hjónabandið varð ekki langlíft því þau skildu sumarið 2016. Rúmu ári síðar, eða þann 25. ágúst í fyrra, lést Piana af völdum hjartaáfalls.
https://www.instagram.com/p/Bo9tldEBsJg/?taken-by=sara.ice.queen