fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Fréttir

Svæsið klám í Reykjadal – Tóku upp myndskeið á vinsælli gönguleið fyrir ofan Hveragerði og á hóteli

Ritstjórn DV
Föstudaginn 12. október 2018 14:29

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Falleg náttúra kemur einnig fyrir í myndbandinu.

Klámmyndaleikkonan sem gengur undir nafninu Layna Landry tók upp klámmyndband á Íslandi, eitt myndband er tekið á fjölsóttum ferðamannastað við Hveragerði. Greint er frá þessu á vef Fréttablaðsins. Segir hún einnig á Twitter að hún hafi tekið upp annað myndband hér á landi, það á hótelherbergi. Eitt myndbandið var tekið upp í Reykjadal við Hveragerði, en staðurinn er mjög vinsæll meðal ferðamanna, en engir aðrir ferðamenn sjást í myndbandinu en ekki er hægt að fullyrða um að ekki hafi sést til parsins.

Layna Landry. Mynd/Instagram

Svo virðist sem myndbandið hafi verið tekið upp í apríl á þessu ári og birti Layna það á stærstu klámmyndasíðu í heimi, rúmlega 1.700 manns hafa séð myndbandið. Klámsíðan er gríðarlega vinsæl og margir Íslendingar sem horfa á klám á síðunni. Fyrr á þessu ári benti Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir á það í erindi í Ráðhúsi Reykjavíkur að íslenskir drengir eigi Norðurlandamet í klámáhorfi. „Meðalaldur drengja þegar þeir byrja að horfa á klám er rúm 11 ár og þá erum við að tala um meðalaldur,“ sagði Kolbrún Hrund. Margir drengir væru því talsvert undir þeim aldri. Sagði hún að í heimsóknum sínum í grunn- og menntaskóla að þá klöppuðu piltar oft þegar bent væri á þessa staðreynd. „Þeim finnst þetta geggjað töff,“ sagði Kolbrún Hrund. Erindi hennar snerist ekki síst um að stór hluti klámefnis, allt að 89% samkvæmt nýlegum rannsóknum, innihéldi ofbeldi gegn konum og að afleiðingarnar væru þær að drengir væru margir hverjir með brenglað viðhorf til kynlífs.

Við það tilefni ræddi DV einnig við Stefan Octavian Ghorghe, sem er eini Íslendingurinn, að minnsta kosti opinberlega, sem starfar við framleiðslu á klámi sem vildi fá að fara í grunnskólana og fræða fólk um klám.

Í myndbandinu sést Layna veita manni, sem sagt er að sé kærastinn hennar, munngælur á göngustígnum nærri baðstaðnum. Samkvæmt 209. grein hegningarlaga er svona lostugt athæfi bannað á almannafæri þar sem það særir blygðunarsemi, getur sá sem er dæmdur þurft að sitja í fangelsi í allt að 4 ár en sektir eru við smávægilegum brotum.

Skjáskot af Instagram.

Layna deilir mynd af sér í Reykjadal á Instagram þar sem hún tekur fram að þetta sé ein af fáum myndum af sér í fötum. Layna birti einnig aðra mynd af sér á Instagram þar sem hún er á Íslandi, þá öllu fáklæddari. Í síðustu viku birti Layna svo myndband af sér að veita munngælur í sturtu á hótelherbergi sem hún segir að sé á Íslandi. Layna er 23 ára gömul og kemur frá Bandaríkjunum, hún hóf feril sinn í klámi 19 ára gömul.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Grænkerar harma auglýsingar forsetaframbjóðenda – „Borða pulsur úr gösuðum þjáðum svínum“

Grænkerar harma auglýsingar forsetaframbjóðenda – „Borða pulsur úr gösuðum þjáðum svínum“
Fréttir
Í gær

Mótmælin á Tenerife – Vill ekki ferðamenn með „allt-innifalið“ armbönd

Mótmælin á Tenerife – Vill ekki ferðamenn með „allt-innifalið“ armbönd
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hefur þú stofnað bankareikning í Danmörku? Þá þarftu kannski að bregðast hratt við svo peningarnir þínir renni ekki í danska ríkiskassann

Hefur þú stofnað bankareikning í Danmörku? Þá þarftu kannski að bregðast hratt við svo peningarnir þínir renni ekki í danska ríkiskassann
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Facebook hafnaði kosningaauglýsingu Guðmundar Felix á undarlegum forsendum

Facebook hafnaði kosningaauglýsingu Guðmundar Felix á undarlegum forsendum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ljótar sögur ganga um starfsmenn Langanesbyggðar – Björn sveitarstjóri talar um „eitrað andrúmsloft“ á staðnum

Ljótar sögur ganga um starfsmenn Langanesbyggðar – Björn sveitarstjóri talar um „eitrað andrúmsloft“ á staðnum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Mörg dæmi um að frændhygli, kunningsskapur og pólitísk fyrirgreiðsla ráði för – „Og svo spurði ég um spillingu“

Mörg dæmi um að frændhygli, kunningsskapur og pólitísk fyrirgreiðsla ráði för – „Og svo spurði ég um spillingu“