fbpx
Sunnudagur 28.apríl 2024
Fréttir

Skúli sækist eftir þriðja sæti hjá Samfylkingunni

Flokksval Samfylkingarinnar fer fram 10.febrúar næstkomandi

Björn Þorfinnsson
Miðvikudaginn 17. janúar 2018 16:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Skúli Helgason gefur kost á sér í 3. sæti í flokksvali Samfylkingarinnar fyrir komandi borgarstjórnarkosningar sem fram fer 10. febrúar næstkomandi. Skúli hefur verið borgarfulltrúi í eitt kjörtímabil, í meirihlutasamstarfi undir forystu Samfylkingarinnar, og hefur verið með skóla- og frístundamálin á sínum herðum.

Í fréttatilkynningu frá Skúla kemur fram að hann hafi „leitt markvissa sókn í málaflokknum, sem birtist meðal annars í auknum fjárveitingum, sem nema 9 milljörðum króna á kjörtímabilinu, tillögum um bætt starfsumhverfi leikskóla, grunnskóla og frístundastarfs og mótun menntastefnu Reykjavíkurborgar til ársins 2030.“

Að sögn Skúla er sú vinna á lokastigi og telur hann afar mikilvægt að eftirfylgni með innleiðingu hennar verði eins og best verður á kosið. Því skiptir miklu máli að reynsla hans og þekking á málaflokknum geti áfram nýst við þá vinnu.

Framboðsyfirlýsingu Skúla má finna í heild sinni hér að neðan:

Kæra Samfylkingarfólk

Ég býð mig fram í 3. sæti í flokksvali Samfylkingarinnar fyrir borgarstjórnarkosningar sem fram fer þann 10. febrúar næstkomandi. Ég hef sinnt starfi borgarfulltrúa frá 2014 og verið formaður skóla- og frístundaráðs sem fer með viðamesta málaflokkinn í borgarmálunum þar sem framtíð barnanna okkar er í húfi. Þá hef ég setið í stjórnkerfis- og lýðræðisráði en lýðræðismálin eru mér mjög hugleikin enda hafa þau verið rauður þráður í stefnu Samfylkingarinnar allt frá stofnun og flokkurinn haft forgöngu um ýmsar nýjungar í þeim efnum, þ.m.t. rafrænar kosningar.

Kraftmikil sókn í menntamálum

Mikil sókn stendur yfir í skóla- og frístundamálum borgarinnar og hefur þessi málaflokkur verið í forgangi varðandi fjárveitingar síðan hagur borgarsjóðs tók að vænkast haustið 2016 eftir hagræðingaraðgerðir undangenginna missera. Fjárveitingar til málaflokksins hafa aukist um 9 milljarða króna á kjörtímabilinu þrátt fyrir lækkun leikskólagjalda og eru nú mun hærri að raungildi en fyrir hrun. Þar munar miklu um hækkun launa enda höfðu laun kennara og annars skólafólks ekki haldið í við launaþróun áranna á undan. Við höfum lagt höfuðáherslu á að styrkja innra starfið og bæta starfsumhverfi leikskóla, grunnskóla og frístundar með ítarlegri rýni og tillögugerð með það að markmiði að þessar mikilvægu stofnanir verði eftirsóknarverðari vinnustaðir. Undanfarið ár höfum við svo unnið að mótun menntastefnu Reykjavíkurborgar til 2030 í samstarfi við þúsundir kennara, skólastjórnenda og annars starfsfólks okkar auk þess sem fjölmargir borgarbúar hafa lagt gott til málanna í gegnum Betri Reykjavík. Þessi vinna er á lokastigi og verður kynnt á vormánuðum. Þá tekur við mikilvægasti hluti vinnunnar, innleiðing stefnunnar og er ég tilbúinn að leiða þá vandasömu vinnu.

Ég tel að við höfum einstakt tækifæri til að þróa í samvinnu við skólasamfélagið framsækið og skapandi skóla- og frístundastarf þar sem börnin sjálf, áhugasvið þeirra og styrkleikar gegni veigameira hlutverki í hinu daglega starfi. Mikilvægt er að Samfylkingin sýni í verki að menntamálin njóta forgangs í stefnu flokksins í borginni því þessi málaflokkur endurspeglar með beinum hætti grunngildi okkar um jöfnuð – jöfn tækifæri allra barna og ungmenna til menntunar og alhliða þroska.

Lýðræði og valddreifing

Á vettvangi stjórnkerfis- og lýðræðisráðs hef ég tekið þátt í því að móta lýðræðisstefnu borgarinnar, nýja upplýsinga- og þjónustustefnu sem miðar að því að einfalda og laga viðmót borgarstofnana að þörfum borgarbúa. Virkt lýðræði, valddreifing og íbúasamráð eru mál sem ég vil vinna áfram brautargengi á komandi misserum og sé ýmis tækifæri til að auka völd og sjálfsforræði starfsstöðvanna okkar úti á vettvangi, auk þess sem í burðarliðnum eru spennandi breytingar á samsetningu og valdsviði hverfisráðanna sem munu styrkja stöðu íbúanna í hverfunum.

Græn höfuðborg fyrir barnafólk

Við einsetjum okkur að bæta þjónustu við fjölskyldur ungra barna, þar með talið að bjóða yngri börnum inn á leikskóla borgarinnar samhliða því að styrkja dagforeldrakerfið. Ég hef stýrt vinnu starfshópsins Brúum bilið og erum að leggja lokahönd á tillögur sem miða að því að á næsta kjörtímabili verði hægt að bjóða foreldrum barna á aldrinum 15-18 mánaða pláss á leikskólum borgarinnar. Liður í því er að opna ungbarnadeildir í öllum borgarhlutum. Sjö slíkar deildir tóku til starfa í haust og fleiri munu bætast við á komandi vikum og mánuðum.

Ég vil líka beita mér fyrir því að aðstaða til fjölbreyttrar útivistar barnafjölskyldna verði bætt í borgarlandinu með áherslu á grænu svæðin í borginni.

Græn höfuðborg

Eitt mikilvægasta verkefni sem ég stýrði þegar ég sat á þingi var stefnumótun Alþingis um eflingu græna hagkerfisins. Á næsta kjörtímabili vil ég beita mér sérstaklega í umhverfismálum með áherslu á loftslagsmál og raunhæfar leiðir til að draga úr losun almennings og fyrirtækja.

Ég er stoltur af árangri Samfylkingarinnar og meirihlutans í borgarstjórn síðastliðin fjögur ár. Ég hlakka til að fylgja eftir og berjast með félögum mínum fyrir helstu stefnumálum okkar um fjölbreytta húsnæðisuppbyggingu, Borgarlínu, styttingu vinnuvikunnar og sókn í menntamálum í kosningabaráttunni í vor og bið um stuðning félaga minna í 3. sæti á framboðslista Samfylkingarinnar í vor.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Framsóknarmenn styðji ÁTVR og forvarnir – „Atlaga Sjálfstæðisflokksins að ÁTVR er ævintýraleg“

Framsóknarmenn styðji ÁTVR og forvarnir – „Atlaga Sjálfstæðisflokksins að ÁTVR er ævintýraleg“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Pálmatré raunhæft verkefni en aðeins eitt tré mun rísa

Pálmatré raunhæft verkefni en aðeins eitt tré mun rísa
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Grænkerar harma auglýsingar forsetaframbjóðenda – „Borða pulsur úr gösuðum þjáðum svínum“

Grænkerar harma auglýsingar forsetaframbjóðenda – „Borða pulsur úr gösuðum þjáðum svínum“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Mótmælin á Tenerife – Vill ekki ferðamenn með „allt-innifalið“ armbönd

Mótmælin á Tenerife – Vill ekki ferðamenn með „allt-innifalið“ armbönd