Sigmundur Davíð Gunnlaugsson var orðinn tæplega 128 kíló í byrjun þessa árs þegar hann ákvað að breyta um lífsstíl og fara í heilsuátak. Nú rúmu hálfi ári síðar er Sigmundur búinn að losa sig við 30 kíló og er hvergi nærri hættur. Sigmundur segir frá átakinu í viðtali sem birtist í Fréttablaðinu í morgun.
„Ég ákvað að hætta að borða bara til þess að borða. Ég átti það til í dagsins önn og miklu stressi að hrúga ofan í mig þeim mun meiri mat og í þessu starfi eru mýmörg tækifæri til að borða,“ segir Sigmundur í samtali við Fréttablaðið en hann hann stefnir á að losa sig við 10 kíló í viðbót.
Sigmundur ákvað að breyta matarvenjum og borðar nú eins þegar hann er svangur. „Ég sneri því hugarfarinu við og í stað þess að líta á mat sem hápunkt dagsins fór ég yfir í að líta á mat sem kvöð og borða helst ekki nema ég neyðist til þess vegna svengdar.“
Meðfram því að breyta matarvenjum fór Sigmundur að hreyfa sig reglulega. „Þetta fór nokkuð hratt af stað. Ég fór í World Class þrisvar í viku til að byrja með en svo fór þjálfarinn minn, Baldur Borgþórsson, sjálfur í pólitíkina og mátti ekki vera að því að þjálfa mig lengur. Við stefnum að því að byrja aftur í haust en mér fannst gott aðhald að byrja daginn í ræktinni því þá vill maður síður eyðileggja daginn með óhollustu,“ segir Sigmundur og bætir því við að aukið úthald og þrek geri daglegt líf betra.
Í samtali við blaðamann Fréttablaðsins segir Sigmundur það taka um þrjár vikur að venja sig af óhollustu en það eru einna helst brauð og kartöflur sem freista. „Þess vegna hef ég þá reglu að borða eingöngu íslenskar kartöflur og helst úr kjördæminu.“