fbpx
Mánudagur 29.apríl 2024
Eyjan

Útlendingar jákvæðir í garð Íslands

Ritstjórn Eyjunnar
Mánudaginn 10. september 2018 14:16

Ætli þessi hafi fengið töskurnar fljótt á flugvellinum?

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mikil jákvæðni ríkir í garð Íslands samkvæmt könnun sem framkvæmd fyrir hönd Íslandsstofu í Bretlandi, Bandaríkjunum, Kanada, Þýskalandi, Frakklandi og Danmörku. Svarendur voru á aldrinum 25 – 65 ára sem ferðast a.m.k. einu sinni á ári og svöruðu 1000 aðilar frá hverju markaðssvæði.

Um 70% aðspurðra voru jákvæðir í garð Íslands sem áfangastaðar og mældust Þjóðverjar jákvæðastir en þar náði hlutfallið 75%. Áhugi hefur aukist á að ferðast til Íslands utan sumarmánaða, 67% aðspurðra sögðust myndu íhuga það en það er aukning um 14% frá síðustu könnun sem var framkvæmd í janúar 2017. Þá telja 87% svarenda það mikilvægt að upplifa sögu og menningu áfangastaða sem þau heimsækja en 84% telja að Ísland hafi sögulegar minjar og staði sem vert er að heimsækja.

Þegar spurt var um ákveðna þætti sem svarendur tengja við land og þjóð kom fram að Ísland þykir óspillt, fallegt, sjálfbært og öruggt land með áhugaverða sögu og menningu. Hugrenningartengsl við áfangastaðinn voru helst þau að Ísland væri öruggur áfangastaður með óspillta og einstaka náttúru sem býður upp á víðáttu og kyrrð, gestrisið heimafólk og fjölbreytta afþreyingu fyrir alla fjölskylduna allt árið um kring.

Flestir svarenda eða 65% voru jákvæðir í garð íslenskrar vöru og þjónustu. Töluvert meiri jákvæðni er nú heldur en var strax eftir hrun og hefur aukist ár frá ári. Í janúar 2011 voru t.a.m. 10,5% Breta jákvæðir en í febrúar 2018 var sú tala 61,5% sem er hækkun um 51 prósentubil á aðeins sjö árum.

Þekking á íslenskum vörum og vörumerkjum var einnig könnuð. Þær íslensku vörur sem svarendur gátu helst nefnt voru fiskur (21%), skyr (11%) og ull (11%) en geta má þess að 76% gátu ekki nefnt neinar íslenskar vörur.Þegar spurt var almennt um landið Ísland nefndi fólk helst náttúruna (22%), næst veðurfar og kulda (21%), svo jarðvarma (15%).

Ísland sem upprunaland fiskafurða mælist áhrifamikið í hugum neytenda en 78% sögðu að það myndi hafa jákvæð áhrif á ákvörðun sína þegar þau væru að panta sér fisk á veitingastað, ef þau vissu að fiskurinn kæmi frá Íslandi. Á þessu sviði mælast Ísland og Noregur svipað hátt sem er töluvert hærra heldur en Kína, Spánn og Færeyjar.

Af niðurstöðum könnunarinnar má sjá að áhugi gagnvart Íslandi er mikill og fer vaxandi en 78% þeirra sem svöruðu könnuninni sögðust vilja læra meira um Ísland.

Könnunin var framkvæmd af rannsóknafyrirtækinu Maskínu fyrir hönd Íslandsstofu í febrúar á þessu ári. Íslandsstofa hefur framkvæmt reglulega viðhorfskannanir erlendis síðan 2010 en niðurstöður þeirra má nálgast á vefsíðu Íslandsstofu hér.

 

Jákvætt viðhorf erlendis, en Ísland á mikið inni

  • Erlendir ferðamenn eru jákvæðir í garð Íslands
  • Ísland þykir óspillt, fallegt, sjálfbært og öruggt land með áhugaverða sögu og menningu
  • Þjóðverjar jákvæðastir gagnvart Íslandi sem áfangastað
  • Fleiri íhuga að ferðast til Íslands utan sumarmánaða
  • Ísland hefur sögulegar minjar og staði sem vert er að heimsækja
  • 51% fleiri Bretar eru jákvæðir gagnvart íslenskum vörum nú en fyrir sjö árum
  • 78% aðspurðra segjast vilja læra meira um Ísland

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Snorri Jakobsson: Fyrstu vaxtahækkanirnar 2021 voru bara upp á punt – þær síðustu of miklar

Snorri Jakobsson: Fyrstu vaxtahækkanirnar 2021 voru bara upp á punt – þær síðustu of miklar
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Jón Sigurður skrifar: Eiga ekki saman Jón og Júróvisjón

Jón Sigurður skrifar: Eiga ekki saman Jón og Júróvisjón
Eyjan
Fyrir 1 viku

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja
Eyjan
Fyrir 1 viku

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að