fbpx
Mánudagur 29.apríl 2024
Fréttir

Þorsteinn: Björt framtíð yfirgefur miðjuna til að tryggja sér aðild að nýrri vinstri stjórn

Einar Þór Sigurðsson
Mánudaginn 24. október 2016 12:17

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Helstu tíðindin eru þau að Björt framtíð skuli fyrir kosningar yfirgefa þá stöðu sem hún virtist vera komin í á miðjunni til að tryggja sér aðild að nýrri vinstri stjórn,“ segir Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins og liðsmaður Viðreisnar, í pistli á vef Hringbrautar.

Þar gerir Þorsteinn að umtalsefni þær vendingar sem urðu á dögunum þegar Pírötum tókst að leiða VG, Samfylkinguna og Bjarta framtíð að viðræðuborðinu um vinstri stjórn fyrir kosningar. Þorsteinn segir að stóru tíðindin séu þær að Björt framtíð hafi ákveðið að taka þátt.

Búvörusamningar breyttu öllu

„Allt fram á haust bentu skoðanakannanir til að Björt framtíð gæti átt það á hættu að fá ekki mann kjörinn. Vandi hennar var fyrst og fremst sá að í nánu samstarfi stjórnarandstöðuflokkanna náði hún ekki að skapa sér sérstöðu. Atkvæðagreiðslan um búvörusamningana gjörbreytti þessari stöðu,“ segir Þorsteinn og bætir við:

„Samfylkingin sem lengi hafði talað með digrum barka um nauðsyn breytinga í landbúnaði varð að gjalti þegar hún ákvað að sitja hjá í þeirri atkvæðagreiðslu. Það er mesta hjálp sem núverandi ríkisstjórn hefur fengið til að viðhalda kyrrstöðu um sérhagsmuni,“ segir Þorsteinn og bætir við að Samfylkingin hafi verið í þeirri klípu að þurfa að velja á milli tveggja kosta.

Í raun þýðir þetta að Píratar og VG þurfa ekki að fórna neinu í málefnum sem einhverju skiptir til að hafa Bjarta framtíð með.

„Annars vegar að sýna kjósendum að hún væri trú eigin málflutningi í þessu máli sem snerist um grundvallaratriði í átökunum milli sérhagsmuna og almannahagsmuna. Hins vegar að halda trúmennsku við fyrirheitið um samstarf við VG eftir kosningar. Það hefði augljóslega beðið hnekki ef leiðir hefðu skilið í svo stóru máli á loka dögum þinghaldsins.
Kannski áttuðu Píratar sig ekki á að þetta var mál sem varðaði almannahagsmuni. En líklegra er að þeir hafi einnig látið skoðanir flokksins liggja milli hluta til þess að halda samstöðunni við VG og veikja ekki hugmyndina um vinstra samstarf,“ segir Þorsteinn sem bætir við að Björt framtíð hafi valið hinn kostinn.

Björt framtíð missir samningsstöðu

Hann bendir á að fylgið hafi í kjölfarið farið að vaxa í skoðanakönnunum og margt hafi bent til þess að flokkurinn væri að hasla sér sjálfstæðan völl á miðjunni.

„Nú viku fyrir kosningar gengur Björt framtíð til liðs við hjásetuflokkana á vinstri vængnum til þess að fá sæti við þeirra borð. Upplýst hefur verið að engin stór mál skilji flokkana að. Skilaboðin til kjósenda eru þau að engar málefnalegar hindranir standi í vegi vinstri stjórnar,“ segir Þorsteinn sem segir að ef til vill breyti þetta ekki miklu. Björt framtíð hafi alltaf átt þann kost að semja við vinstri flokkana eftir kosningar.

Hann bendir þó að einu málefnalegu áhrifun séu þau að Björt framtíð missir samningsstöðu. „Nú hefur hún fyrir fram bundið sig í þetta samstarf án þess að búið sé að gera út um málefnin. Eftir kosningar hefur hún því mjög veika samningsstöðu um málefni. Í raun þýðir þetta að Píratar og VG þurfa ekki að fórna neinu í málefnum sem einhverju skiptir til að hafa Bjarta framtíð með. En þeir þurfa að gefa einn ráðherrastól eftir.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Framsóknarmenn styðji ÁTVR og forvarnir – „Atlaga Sjálfstæðisflokksins að ÁTVR er ævintýraleg“

Framsóknarmenn styðji ÁTVR og forvarnir – „Atlaga Sjálfstæðisflokksins að ÁTVR er ævintýraleg“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Pálmatré raunhæft verkefni en aðeins eitt tré mun rísa

Pálmatré raunhæft verkefni en aðeins eitt tré mun rísa
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Grænkerar harma auglýsingar forsetaframbjóðenda – „Borða pulsur úr gösuðum þjáðum svínum“

Grænkerar harma auglýsingar forsetaframbjóðenda – „Borða pulsur úr gösuðum þjáðum svínum“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Mótmælin á Tenerife – Vill ekki ferðamenn með „allt-innifalið“ armbönd

Mótmælin á Tenerife – Vill ekki ferðamenn með „allt-innifalið“ armbönd