fbpx
Fimmtudagur 18.desember 2025

Schola cantorum syngur á tónleikum í Hallgrímskirkju á morgun

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 21. ágúst 2018 17:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Viðburðaríku 26. Alþjóðlega orgelsumri er lokið. 38 eftirminnilegir tónleikar í Hallgrímskirkju á rúmlega tveimur mánuðum og aðsóknin á hátíðina hefur líklega aldrei verið jafn góð. Kammerkór Hallgrímskirkju, Schola cantorum, mun þó halda áfram að gleðja tónleikagesti með söng sínum næstu tvo miðvikudaga.

Miðvikudaginn 22. ágúst kl. 12 syngur hinn margrómaði kammerkór Hallgrímskirkju, Schola cantorum, íslenskar og erlendar kórperlur eftir Jón Ásgeirsson, Jón Nordal, Sigvalda Kaldalóns, Händel, Byrd, Sigurð Sævarsson, Þorkel Sigurbjörnsson og Hjálmar H. Ragnarsson. Tónleikagestum er boðið í kaffi og spjall við meðlimi kórsins að tónleikunum loknum. Miðaverð kr. 2500.

Miðasala í Hallgrímskirkju opnar klukkutíma fyrir tónleikana en einnig má kaupa miða á midi.is.

  1. ágúst kl. 12.00: Schola cantorum

Efnisskrá:

Vorvísa Texti: Halldór Laxness 1902‒1998

Músik: Jón Ásgeirsson *1928

Smávinir fagrir Texti: Jónas Hallgrímsson 1807‒1845

Músik: Jón Nordal *1926

Á Sprengisandi Texti: Grímur Thomsen 1820‒1896

Músik: Sigvaldi Kaldalóns 1881‒1946

Úts.: Jón Ásgeirsson

Dagur er nærri Kristján Valur Ingólfsson, *1947

Músik: George Fridrich Handel 1675‒1759

Ave Verum Corpus Texti: Latneskur hymni

Músik: Willian Byrd 1540‒1623

Nunc dimittis Texti: Luk. 2. 29–32

Músik: Sigurður Sævarsson *1963

Heyr, himna smiður Texti: Kolbeinn Tumason 1173–1208

Músik: Þorkell Sigurbjörnsson 1938–2013

Stóðum tvö í túni Texti: Þjóðvísa

Músík: Ísl. Þjóðlag

Úts.: Hjálmar H. Ragnarsson *1952

Grafskrift Texti: Þjóðvísa

Músík: Ísl. þjóðlag

Úts.: Hjálmar H. Ragnarsson

Schola cantorum, kammerkór Hallgrímskirkju, hefur frá upphafi hlotið mikla athygli fyrir fágaðan og tæran söng sinn. Kórinn var valinn „Tónlistarflytjandi ársins 2016” á Íslensku tónlistarverðlaununum í mars 2017 og hefur unnið til verðlauna í erlendum keppnum og komið fram á tónleikum í Noregi, Svíþjóð, Finnlandi, Ítalíu, Spáni, Þýskalandi, Frakklandi, Japan, Sviss og Bandaríkjunum. Schola cantorum var útnefndur Tónlistarhópur Reykjavíkurborgar 2006, tilnefndur til tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs 2007 og Íslensku tónlistarverðlaunanna 2013. Kórinn hefur frá upphafi leikið mikilvægt hlutverk í íslensku tónlistarlífi og frumflutt verk eftir fjölda íslenskra tónskálda auk þess að flytja tónlist allra stíltímabila með og án hljóðfæraundirleiks, m.a. í samstarfi við Sinfóníuhljómsveit Íslands, Alþjóðlegu barokksveitina í Hallgrímskirkju (áður Den Haag), Björk, Sigurrós o.fl. Kórinn kom einnig fram á 5 tónleikum á tónlistarhátíðinni Reykjavík Festival í Walt Disney Hall í Los Angeles í apríl 2017, þ.s. söngur kórsins hlaut einróma lof í allri umfjöllun stórblaða svo sem New York Times, LA Times og fleira. Stjórnandi kórsins frá upphafi er Hörður Áskelsson.

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Rekinn úr vinnu á sama tíma og hundurinn hans hvarf

Rekinn úr vinnu á sama tíma og hundurinn hans hvarf
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Nýtt mynband af Ruben Amorim vekur athygli – Öskraði af reiði á bekkinn

Nýtt mynband af Ruben Amorim vekur athygli – Öskraði af reiði á bekkinn
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Bruno Fernandes daðrar við Spán og Ítalíu – Heldur áfram að vekja athygli með ummælum sínum

Bruno Fernandes daðrar við Spán og Ítalíu – Heldur áfram að vekja athygli með ummælum sínum
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Fjögur ensk lið til í að semja við reynsluboltann

Fjögur ensk lið til í að semja við reynsluboltann
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum
Elmar fékk þungan dóm
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Verðkönnun ASÍ á algengum jólavörum: Afar mikill munur á ýmsum verðum milli verslanna og hvaða pakkningar eru valdar

Verðkönnun ASÍ á algengum jólavörum: Afar mikill munur á ýmsum verðum milli verslanna og hvaða pakkningar eru valdar
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Forsætisráðherra til í að fara með Abramovich fyrir dómstóla

Forsætisráðherra til í að fara með Abramovich fyrir dómstóla
Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Súlunesmálið: Leituðu til miðils og tónlistarmanns til að sefa ofsa Margrétar

Súlunesmálið: Leituðu til miðils og tónlistarmanns til að sefa ofsa Margrétar
Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Mannslát á Kársnesi: Lögregla óskar eftir aðstoð almennings

Mannslát á Kársnesi: Lögregla óskar eftir aðstoð almennings
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Dæmdur fyrir að sviðsetja slys í Borgarbyggð

Dæmdur fyrir að sviðsetja slys í Borgarbyggð