fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Sylvía Rut ráðin ritstýra Pressunnar

Kristín Clausen
Föstudaginn 2. september 2016 13:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sylvía Rut Sigfúsdóttir hefur verið ráðin ritstýra Pressunnar. Sylvía Rut hefur starfað hjá Vefpressunni frá því í júní 2013, fyrst sem blaðamaður og svo var hún ráðin ritstýra Bleikt.is þann 4.apríl árið 2014. Hún tekur nú við sem ritstýra Pressunar og verður samhliða því einnig áfram ritstýra Bleikt. Sylvía Rut tekur við starfinu af Kristjóni Kormáki Guðjónssyni sem hefur nú verið ráðinn ritstjóri DV og DV.is.

„Ég hlakka mikið til þess að takast á við þessa áskorun. Á Pressunni, Bleikt og Eyjunni eru frábærir blaðamenn og lausapennar sem ég hef fengið að kynnast vel í mínu starfi og er ég spennt að vinna með þeim áfram í þessu nýja hlutverki. Þakka ég Birni Inga Hrafnssyni og Arnari Ægissyni fyrir traustið og þetta spennandi tækifæri,“ segir Sylvía Rut.

Pressan er fjölbreyttur miðill sem býður upp á fréttir í bland við viðtöl, afþreyingarefni og pistla. Framundan eru margar spennandi breytingar, meðal annars í snjallsímaviðmóti Pressunnar sem mun auðvelda aðgengi lesenda að efninu og mun það styrkja miðilinn enn frekar.

Sylvía Rut er með meistaragráðu í fjölmiðlafræði frá Kaupmannahafnarháskóla. Hún býr í Hafnarfirði ásamt eiginmanni sínum Snorra Sigurðssyni verkfræðingi og tveimur sonum.

„Að þróa og breyta Bleikt.is bæði efnislega og útlitslega hefur verið frábær reynsla og er ég lesendum ótrúlega þakklát fyrir góðar viðtökur. Er ég mjög spennt að gera það sama með Pressuna og gera vefinn enn sterkari í samvinnu við blaðamenn og stjórnendur Vefpressunnar.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 dögum

Útskýrir „eitraðan kokteil“ hagstjórnarmistaka sem þjóðin er enn að gjalda fyrir – „Þetta ástand fékk að lifa allt of lengi“

Útskýrir „eitraðan kokteil“ hagstjórnarmistaka sem þjóðin er enn að gjalda fyrir – „Þetta ástand fékk að lifa allt of lengi“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“