Mörgum finnst það fréttnæmt þegar klámmyndastjörnur gera eitthvað í einkalífinu, flestum ekki. Því kom það mörgum á óvart að heyra fjallað um skilnað tveggja klámmyndaleikara í morgunfréttum RÚV í morgun, fimmtudag. RÚV hefur stundum látið það eftir sér að fjalla eilítið um fræga fólkið en segja má að önnur vídd hafi opnast morguninn þann.
Vissulega á þessi tiltekna klámmyndastjarna í málaferlum við Bandaríkjaforseta, en það að hún sé að skilja við annan klámmyndaleikara er varla vending í málinu.
Margir vilja vernda RÚV sérstaklega vegna menningarlegs hlutverks stofnunarinnar, það er von að sumir hafi klórað sér í höfðinu þegar þessi sérstaklega verndaða menningarstofnun eyðir kröftum í að upplýsa þjóðina um einkalíf einhverra klámmyndaleikara, sérstaklega þar sem RÚV mundi seint sýna mynd með þeim.