Hinn reyndi fjölmiðlamaður Eggert Skúlason er genginn til liðs við Morgunblaðið. Mun Eggert skrifa um veiði og stýra innslögum sem birt verða á vef mbl.is. Eggert hefur um árabil starfað á fjölmiðlum, verið almannatengill og stýrði DV í tæplega tvö ár. Eftir að Eggert yfirgaf DV gerðist hann rekstrarstjóri Frú Laugu við Laugalæk ásamt Guðnýju Önnudóttur.
Eggert segir í samtali við DV að markmið hans á Morgunblaðinu sé að ná til veiðisamfélagsins. Segir Eggert að spennandi tímar séu framundan og tilhlökkun að takast á við krefjandi og skemmtilegt verkefni.
„Við ætlum að birta mikið af lifandi efni á mbl.is í anda Sporðakasta,“ segir Eggert en þeir þættir vöktu mikla athygli á Stöð 2 um árið. Þá kveðst Eggert vera að gera nýja Sporðakastaseríu af gamla skólanum. Eggert tjáði sig einnig á samskiptamiðlum en hann segir á Facebook: „Lífið er svo fullt af ævintýrum og tækifærum.“