Ari Jósepsson hefur fulla trú á strákunum okkar á heimsmeistaramótinu í Rússlandi og sendir þeim góða strauma í nýju myndbandi. Ari er þekktastur fyrir myndbönd sem hann hefur birt á Youtube en nýjasta myndband Ara má sjá í spilaranum hér að neðan.
„Þetta eru fyrirmyndar strákar og Rúrik er að fá þvílíkt gott umtal. Gott umtal er mjög gott,“ segir Ari sem lýsir þjóðinni sem kraftaverkaþjóð sem geti allt.
„Við förum alltaf í gegnum svo margar öldur og segjum alltaf að allt reddist og þetta reddast alltaf, það er okkar mottó,“ segir Ari.
Hann segist stoltur af strákunum okkar þrátt fyrir tapið gegn Nígeríu. „Það er stórsigur að vera á HM og ég er stoltur Íslendingur,“ segir Ari sem endar myndbandið á því að enda strákunum okkar góða strauma.