fbpx
Sunnudagur 22.júní 2025
Eyjan

Vinsæll tölvuleikur notaður til stærðfræðikennslu

Ritstjórn Eyjunnar
Þriðjudaginn 5. júní 2018 11:00

Tölvuleikurinn Minecraft er afar vinsæll um allan heim en kínversk börn fá ekki mikinn tima til að spila hann.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í íslenskum skólum má finna marga Minecraft-snillinga. Tölvuleikurinn er spilaður bæði utan skóla og innan hans en í gær buðu kennarar í Fossvogsskóla Lilju Alfreðsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra að kynnast því hvernig þessi vinsæli leikur er notaður við stærðfræðikennslu í 5. bekk.

„Sköpun er meðal þeirra sex grunnþátta sem við viljum að einkenni skólastarf á Íslandi. Í aðalnámsskrá grunnskólanna er fjallað um mikilvægi hennar sem og fjölbreytilegs og frjós námsumhverfis. Það var virkilega forvitnilegt að fylgjast með krökkunum læra af leiknum. Það verkefni kennarans að kveikja áhuga og forvitni á námsefninu er ekki einfalt. Árangur í námi grundvallast að miklu leyti á þessum áhuga svo það er mikið í húfi, en kennarar í dag eru duglegir að hugsa út fyrir kassann,“

sagði Lilja Alfreðsdóttir að kennslustund lokinni.

Hjálmur Dór Hjálmsson, kennsluráðgjafi, hefur notað Minecraft í kennslu síðan haustið 2012, einkum í stærðfræði, íslensku og samfélagsgreinum.

„Reynsla mín af Minecraft í kennslu er mjög góð. Minecraft er frábært verkfæri til að virkja sköpunargáfu nemenda í ólíkum námsgreinum og fyrir þá er mikill kostur að geta séð hlutina fyrir sér og eiga þannig auðveldara með að tengja við flóknari hugtök. Með Minecraft er hægt að gera námið skemmtilegt og kalla fram jákvæða upplifun af því fagi sem unnið er að hverju sinni.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 2 dögum
Enn eru fornmenn á ferð
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Eldhúsdagurinn afhjúpaði harðlínu andstöðunnar

Sigmundur Ernir skrifar: Eldhúsdagurinn afhjúpaði harðlínu andstöðunnar
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Ofbeldi í nánum samböndum

Óttar Guðmundsson skrifar: Ofbeldi í nánum samböndum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Obba og Hanna sýna á sér aðra hlið – Ekki gott að lenda á eftir Þorgerði Katrínu í ræðustól af einfaldri ástæðu

Obba og Hanna sýna á sér aðra hlið – Ekki gott að lenda á eftir Þorgerði Katrínu í ræðustól af einfaldri ástæðu
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Andlitin sem enginn man

Nína Richter skrifar: Andlitin sem enginn man