Ný hreinsistöð skólps verður tekin í notkun á Akranesi í dag og bætist bærinn þar með í hóp þeirra sveitafélaga sem uppfylla kröfur um skólphreinsun samkvæmt reglugerð. Þetta kemur fram í tilkynningu.
Með hreinsistöðinni er stigið stórt skref í umhverfismálum Akurnesinga. Fyrir uppbyggingu fráveitunnar rann óhreinsað skólp út um átta meginútrásir, nálægt fjöruborði. Nú er skólpi veitt frá þessum útrásum og í hreinsistöð. Uppbygging kerfisins fól í sér, auk hreinsistöðvarinnar, uppsetningu á sex nýjum dælubrunnum sem dæla skólpinu frá gömlu útrásunum í átt að hreinsistöðinni, nokkrum kílómetrum af nýjum lögnum á landi og sjólögn frá hreinsistöðinni. Stöðin hreinsar öll gróf efni úr skólpinu auk þess að sía frá sand og fitu. Skólpinu er því næst dælt um hálfan annan kílómetra út í sjó.
Hönnun mannvirkisins hófst árið 2006 og var smíði þess boðin út í áföngum 2007 og 2008. Árin 2008-2010 voru mannvirkin byggð, dælubrunnar settir niður og megnið af lagnavinnu klárað. Erfið fjárhagsstaða Orkuveitu Reykjavíkur í kjölfar hrunsins varð til þess að frekari nýframkvæmdum var frestað. Þráðurinn var svo tekinn upp á Akranesi árið 2015 þegar lögð var lögn í sjó og í dag sjáum við fyrir endann á þessari stórframkvæmd. Á næstu vikum taka Veitur svo formlega í notkun nýja skólphreinsistöð í Borgarnesi.
Veitur annast uppbyggingu og reka fráveitukerfi fyrir um 40% landsmanna, í Reykjavík, Borgarnesi, á Akranesi, Bifröst, Hvanneyri, Varmalandi og í Reykholti auk þess að hreinsa skólp frá fráveitum í Kópavogi, Mosfellsbæ, Seltjarnarnesi og hluta Garðabæjar í hreinsistöðvum sínum við Ánanaust og Klettagarða. Í Borgarbyggð reka Veitur fjórar tveggja þrepa hreinsistöðvar þar sem, auk grófhreinsunar, fer fram niðurbrot á lífrænum efnum áður en hreinsuðu skólpi er veitt í viðkvæman viðtaka. Veitur þjóna þannig um 60% landsmanna með skólphreinsun af þeim 77% sem búa við fráveitu er uppfyllir kröfur samkvæmt reglugerð.
Mannvirki sem þetta kostar mikinn pening, bæði í byggingu og rekstri. Það skiptir máli að umgangast það á réttan hátt svo það komi að sem mestu gagni. Undanfarin misseri hafa Veitur staðið fyrir átakinu Blautþurrkan er martöð í pípunum sem ætlað er að vekja athygli á því að klósett eru ekki ruslafötur. Í þau eiga ekki að fara blautþurrkur, bindi, eyrnapinnar, tannþráður eða aðrar hreinlætisvörur. Á hverjum degi fáum við gríðarlegt magn af rusli í hreinsistöðvarnar okkar. Mikil vinna og kostnaður felast í því að hreinsa dælur og farga ruslinu. Með því að minnka magn óæskilegra hluta og efna sem við sendum í fráveituna getum við lækkað kostnað verulega. Til viðmiðunar þá sturtum við fjórfalt meira niður af slíku en Svíar.
Fita og olía á heldur ekki heima í fráveitukerfinu. Fita og blautklútar eru til dæmis slæm blanda. Úr þeim efnivið geta orðið til svokallaðir fituhlunkar, eða ”fatbergs” eins og þeir heita upp á ensku. Þeir eru stórt vandamál í fráveitukerfum víða um heim og hér á landi líka. Málning, leysiefni, lyf og önnur efni eiga ekkert erindi í niðurföllin, því skal skila í endurvinnslu.