fbpx
Sunnudagur 28.apríl 2024
Eyjan

Öruggari og öflugri strandveiðar í sumar!

Ritstjórn Eyjunnar
Fimmtudaginn 26. apríl 2018 20:59

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lilja Rafney Magnúsdóttir ritar:

Þverpólitísk samstaða hefur náðst á Alþingi um breytingar á fyrirkomulagi strandveiða þar sem öryggi
sjómanna var haft að leiðarljósi. Í sumar verða strandveiðar efldar með auknum aflaheimildum og
bátar á hverju svæði fá 12 fasta daga til veiða í hverjum mánuði.

Sveigjanlegra kerfi, aukið öryggi og betri afli
Með breytingunum er sveigjanleiki kerfisins aukinn og sjómenn geta valið þá daga í hverri viku sem
bestir eru til róðra. Þannig eykst möguleikinn á að ná góðu hráefni og sem mestum afla í hverri
veiðiferð. Áfram verður svæðaskipting og sjómenn skrá sig inn á þau svæði sem þeir hafa
heimilisfestu á og róa þar út tímabilið og sami hámarksafli er í hverjum róðri og áður var. Sú breyting
er þó gerð að ufsi er utan hámarksafla og eru því veiðiheimildir vegna strandveiða í sumar verðmætari
sem því nemur. Einnig er ákvæði um heimilisfestu sem lágmarkar flutning báta á milli svæða en
styður við að þeir bátar sem hafa verið að koma til margra brothættra sjávarbyggða á sumrin geti
áfram stundað veiðar þaðan.

Aflaheimildir til strandveiða verðar auknar um 25% frá því sem var lagt upp með í fyrrasumar og
einn sameiginlegur pottur er fyrir öll svæðin. Allir útreikningar sýna að þessi aukning á að duga til að
mæta 12 dögum á bát á hverju svæði allt strandveiðitímabilið. Ráðherra hefur bæði heimild til að
stöðva veiðar en hefur líka reglugerðarheimild til að bæta ónýttum heimildum innan 5,3 % kerfisins í
pottinn ef til þess kæmi í lok tímabils.

Breytingin sem hér er lögð til hefur það markmið að auka öryggi sjómanna, tryggja jafnræði á
milli svæða með auknum aflaheimildum og efla strandveiðikerfið í heild til framtíðar.

Strandveiðar eru mikilvægar
Afli frá strandveiðibátum hefur verið afar mikilvægur fyrir fiskmarkaði og verið hryggjarstykkið í
vinnslu margra fiskvinnslufyrirtækja yfir sumartímann enda yfirleitt gæðahráefni.
Möguleikinn á að velja veiðidaga getur leitt til betra hráefnis sem dreifist til vinnslu jafnar yfir
mánuðinn og ýtir undir eðlilega verðmyndun á afla og styrkir þannig sjávarbyggðir og mögulega
nýliðun í greininni. Það hefur verið áhyggjuefni hve margir hafa hætt að stunda strandveiðar
undanfarin ár og milli áranna 2016 og 2017 fækkaði um 70 báta.

Strandveiðum var komið á árið 2009 undir forystu Vinstri grænna og hafa svo sannarlega sannað
tilverurétt sinn á þessum tíma þótt sumir hefðu allt á hornum sér gegn þeim í upphafi. Strandveiðar
hafa falið í sér möguleika á því að geta stundað veiðar í atvinnuskyni án þess að greiða kvótahöfum
gjald fyrir veiðiheimildir. Strandveiðarnar hafa þannig verið skref í átt til réttlátara
fiskveiðistjórnarkerfis þó meira þurfi til að lagfæra hið meingallaða kvótakerfi með óheftu framsali
sem farið hefur illa með margar sjávarbyggðir.

Stefnumörkun til framtíðar

Þessi tilraun með breytt fyrirkomulag og auknar aflaheimildir i sumar verður grunnur að vinnu við
skipulag á framtíðarfyrirkomulagi strandveiðanna. Skýrsla verður tekin saman um útkomuna eftir
sumarið þar sem lagt verður m.a. mat á áhrif fastra daga á hvert svæði fyrir sig, hvort líta þurfi til
mismunandi fiskgengdar eftir landsvæðum hvað varðar byrjun og lok tímabila og hvað magn þurfi til
að tryggja 12 fasta daga.

Eftir sem áður ráða veður, aflabrögð og fiskni sjómannsins hvernig hverjum og einum gengur
þessa 48 daga sem bjóðast til strandveiða á komandi sumri. Það verður aldrei hægt að tryggja öllum
fullan skammt í 48 daga frekar en í núverandi kerfi en sveigjanleikinn verður til staðar til að mæta t.d.
bilunum, veikindum og vondum veðrum og meira jafnræði verður á milli minni og stærri báta í
kerfinu.

Við tökum svo stöðuna í haust með öllum hagsmunaaðilum og vinnum með útkomuna í þágu
strandveiðisjómanna og sjávarbyggðanna.
Ég, ásamt Ásmundi Friðrikssyni og þáverandi sjávarútvegsráðherra, Þorgerði Katrínu
Gunnarsdóttur, reyndum að vinna sambærilegt mál í fyrra sem náðist ekki samstaða um. Ég, ásamt
félögum mínum í Vinstri grænum, lögðum fram sambærilegt mál í fyrra á Alþingi sem ekki náði fram
að ganga og er það því mikið ánægjuefni að svo breið pólitísk samstaða náðist um málið núna að
frumkvæði atvinnuveganefndar að tekist hefur að ljúka því farsællega. Vil ég þakka öllum sem að
málinu hafa komið með jákvæða og lausnarmiðaða nálgun. Þessi tilraun sýnir að hægt er að þróa
strandveiðar áfram í ljósi reynslunnar með því að draga úr slysahættu við ólympískar veiðar og koma
á meiri fyrirsjáanleika í veiðum með föstum dögum.

Ég vona að vel takist til í sumar og að þetta verði gæfuspor sem hér er stigið og óska þess að allir
strandveiðisjómenn afli vel í sumar og komi heilir til hafnar.
Gleðilegt strandveiðisumar!

Lilja Rafney Magnúsdóttir alþingismaður,
formaður atvinnuveganefndar Alþingis.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Segir kjósendur bera ábyrgð á þeim stjórnmálamönnum sem þeir kjósa

Segir kjósendur bera ábyrgð á þeim stjórnmálamönnum sem þeir kjósa
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum