fbpx
Mánudagur 18.ágúst 2025
Fréttir

Stórtíðindi í Sádí-Arabíu – Kvikmyndasýningar hefjast eftir 35 ára bann – Bæði kynin fá aðgang

Kristján Kristjánsson
Fimmtudaginn 19. apríl 2018 18:30

Konur njóta ekki mikilla réttinda í Sádi-Arabíu frekar en aðrir landsmenn.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Merk tímamót urðu í Sádí-Arabíu á miðvikudaginn þegar kvikmyndasýningar hófust á nýjan leik eftir 35 ára hlé en þær voru bannaðar með öllu. Það sem meira er, nú mega bæði kynin fara í bíó og karlar og konur mega sitja saman og horfa á myndir. Nýja kvikmyndahúsið er í gömlum tónleikasal í höfuðborginni Riyadh og er með einn sýningarsal en þeim fjölgar um þrjá á næstunni. Leðursæti eru í bíóinu, lúxus marmaraskreytt baðherbergi og annað tilheyrandi.

Að jafnaði eru kynin aðskilin í daglegu lífi í Sádí-Arabíu en þar er strangri túlkun á íslamstrú fylgt út i ystu æsar en þó hefur slaknað aðeins á því að undanförnu.

Það er kínverska fyrirtækið AMC Entertainment Holdings sem á nýja kvikmyndahúsið. Fyrirtækið hefur samið við yfirvöld um að opna 40 kvikmyndahús til viðbótar á næstu fimm árum og 60 því til viðbótar fyrir 2030. Hið breska Vue International hefur samið um opnun 30 kvikmyndahúsa og fleiri fyrirtæki vilja gjarnan komast að á þessum markaði en talið er að  hann muni velta milljörðum dollara á ári og að 30.000 ný störf verði til. Íbúar landsins eru um 33 milljónir og þar af eru tveir þriðju hlutar yngri en 30 ára. Það er því eftir miklu að slægjast.

Langvarandi bann við afþreyingu af öllu tagi

Áratugum saman hafa nær öll form afþreyingar verið bönnuð í Sádí-Arabíu. Síðustu kvikmyndahúsunum var lokað í upphafi níunda áratugarins en þá reið holskefla íslamskrar íhaldssemi yfir landið. En í kjölfar þess að Mohamed bin Salman var útnefndur krónprins á síðasta ári hefur margt breyst.

Nú er verið að reisa fyrsta óperuhús landsins, teiknimyndasöguhátíðir hafa verið haldnar, danssýningar og tónleikar.

Allt er þetta liður í Vision 2030 sem er byggt á hugmyndum krónprinsins um efnahags- og félagslegar umbætur. Markmiðið er að nútímavæða Sádí-Arabíu og draga úr því hversu háð þjóðin er olíutekjum. Þess vegna á að byggja um geira á borð við ferðamanna- og skemmtanaiðnaðinn. Landsmenn eyða milljörðum dollara í allskonar afþreyingu utanlands, enda hefur nær allt sem heitir afþreying og skemmtun verið bannað í landinu, en nú vonast yfirvöld til að fólk eyði þessum peningum í afþreyingu heima við.

Lítið hefur heyrst í íhaldssömustu landsmönnunum yfir þessu aukna frjálsræði en þeir líta á jazztónlist, ballet og kvikmyndir sem beina ógn við einstaka íslamska ímynd landsins.

En það eru ýmsar hindranir sem þarf að yfirstíga, til dæmis hvað varðar aðskilnað kynjanna og hvaða myndir á að sýna. Mikil og ströng ritskoðun er í landinu og ástarsenur, kvenlíkamar og atriði þar sem áfengi og/eða eiturlyf sjást eru ekki heimil. Ritskoðunaryfirvöld hafa nú þegar sagt að aðeins kvikmyndir sem ekki stríða gegn sharíalögum og siðferði konungsríkisins muni sleppa í gegnum nálarauga ritskoðunar.

Það var Black Panther sem var sýnd í gær og næsta mynd sem verður tekin til sýninga er Avengers: Infinity War.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Íslensk kona kynntist draumaprinsinum á stefnumótaforriti – ChatGPT staðfesti að svik voru í tafli

Íslensk kona kynntist draumaprinsinum á stefnumótaforriti – ChatGPT staðfesti að svik voru í tafli
Fréttir
Í gær

Meintur níðingur á Múlaborg vel liðinn og sagður blíður við börn

Meintur níðingur á Múlaborg vel liðinn og sagður blíður við börn
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Pris fagnar ársafmæli – Segja fjölskyldur spara tugi eða hundruði þúsunda árlega

Pris fagnar ársafmæli – Segja fjölskyldur spara tugi eða hundruði þúsunda árlega
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Leikskólastarfsmaður grunaður um kynferðisbrot gegn barni

Leikskólastarfsmaður grunaður um kynferðisbrot gegn barni
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Starfsmaður fiskvinnslufyrirtækis lagði fram kæru eftir að hafa verið sagt að mæta í vinnuna í vinnslustöðvun

Starfsmaður fiskvinnslufyrirtækis lagði fram kæru eftir að hafa verið sagt að mæta í vinnuna í vinnslustöðvun
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Stefán segir skemmdarfýsn hafa ráðið för í Tjarnargarðinum – „Það hefur þurft að hafa ansi mikið fyrir þessu“

Stefán segir skemmdarfýsn hafa ráðið för í Tjarnargarðinum – „Það hefur þurft að hafa ansi mikið fyrir þessu“