fbpx
Sunnudagur 28.apríl 2024

Hinn raunverulegi höfundur Staksteina

Orðið
Föstudaginn 20. apríl 2018 13:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Orðið á götunni er að Davíð Oddsson ritstjóri Morgunblaðsins sé alls ekki höfundur Staksteina Morgunblaðsins eins og margir hafa haldið allt frá því Davíð tók við sem ritstjóri blaðsins árið 2009. Þess í stað sé það Karl Blöndal aðstoðarritstjóri sem sé iðulega sá sem skrifi Staksteina og marga leiðara blaðsins sem túlka má sem „harðasta hægrið“. Það eina sem Davíð geri á Morgunblaðinu sé að koma af og til í heimsókn á skrifstofuna og skrifa stundum Reykjavíkurbréf.

Karl Blöndal aðstoðarritstjóri Morgunblaðsins.

Þessar upplýsingar hljóta að vera vonbrigði fyrir þá sem taka Staksteinum sem heilagri ritningu og nota þá til að móta eigin skoðanir. Þetta vekur einnig spurningar um afrakstur vinnu þar sem Davíð er ritstjóri með nærri fjórar milljónir á mánuði þegar það er í raun Karl Blöndal sem sér um að koma málstað Moggans á framfæri, það væri kannski ráð fyrir Karl að koma út úr skápnum sem Staksteinahöfundur þó það væri aðeins til að láta nafn sitt bera á góma þegar kemur að því að finna eftirmann Davíðs.

Eini sem uppfyllir kröfurnar til að verða ritstjóri Morgunblaðsins, þ.e.a.s. að mæta illa til vinnu, eiga aðdáendur sem fylgja öllu sem viðkomandi segir í blindni og telja að 13,7% sé „gott kjörfylgi“, er Sigmundur Davíð Gunnlaugsson. Það er aldrei að vita nema hann slái til á næstu tíu árum, því nóg er til af kvótapeningum til að niðurgreiða tapið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Besta deild kvenna: Sandra skoraði fernu – Svakaleg endurkoma Stjörnunnar

Besta deild kvenna: Sandra skoraði fernu – Svakaleg endurkoma Stjörnunnar
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Mölbrotnaði eftir að hafa hrasað um köttinn sem slapp ómeiddur

Mölbrotnaði eftir að hafa hrasað um köttinn sem slapp ómeiddur
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Verðandi stjóri Liverpool minnir hann á goðsögnina

Verðandi stjóri Liverpool minnir hann á goðsögnina
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Segir Katrínu verða fyrir hatursfullum árásum – „Ein besta og heilsteyptasta manneskja sem ég hef kynnst“

Segir Katrínu verða fyrir hatursfullum árásum – „Ein besta og heilsteyptasta manneskja sem ég hef kynnst“
Fókus
Fyrir 16 klukkutímum

Sagan á bak við Frank Mills

Sagan á bak við Frank Mills
EyjanFastir pennar
Fyrir 19 klukkutímum

Sigmundur Ernir skrifar: Flestir kjósa til vinstri, líka hægrimenn

Sigmundur Ernir skrifar: Flestir kjósa til vinstri, líka hægrimenn
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Gerir risasamning við Pepsi og fær yfir 200 milljónir

Gerir risasamning við Pepsi og fær yfir 200 milljónir