fbpx
Þriðjudagur 03.mars 2026
Eyjan

Tortryggni gagnvart útlendingum

Egill Helgason
Þriðjudaginn 21. júlí 2009 13:33

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það hefði átt að gerast fyrir löngu að erlendir bankar færu að starfa á Íslandi.

Eitt sinn var rætt um að sænski Enskilda bankinn eignaðist hlut í Landsbankanum.

Af því varð ekki. Menn vildu heldur setja bankana í hendur klíkubræðra á Íslandi.

Svoleiðis var mórallinn þá.

Nú fagna flestir því að íslensku bankarnir komist í eigu erlendra kröfuhafa. Það virðist vera skásta leiðin út úr hruni þeirra.

Maður les nöfn frægra bankastofnana eins og Deutsche Bank og Sumimoto – ja, það liggur við að maður fyllist gleði.

En svo veit maður auðvitað ekki hverjir þeir eru eigendur skuldabréfa sem verða stórir eigendur í Glitni og Kaupþingi.

Og mest óttast maður að íslenskir útrásarvíkingar eignist aftur bankana eða stóran hlut í þeim. Að þeir laumist inn um bakdyrnar.

Annars er hún merkileg tortryggnin gagnvart útlendingum í íslenska kerfinu.

Við höfum reist varnir gegn því að þeir geti fjárfest í útgerðinni og orkunni, þeir eru ekki vel séðir í landbúnaðinum – og, eins og ég segi, enn höfum við ekki séð útibú erlendra banka á Íslandi.

Stærsta hindrunin er auðvitað krónan. Útlendingar hafa hikað við að fjárfesta hér vegna hins óstöðuga gjaldmiðils, nema þá álfyrirtæki sem fá raforku á útsöluverði. Og svo þeir sem veðjuðu á krónuna og hina himinháu vexti sem hafa verið á Íslandi. Þeir peningar reyndust vera eins og eitur í hagkerfinu.

En auðvitað er staðreyndin sú að íslenskir kapítalistar hafa verið einfærir um rýja Íslendinga innað skyrtunni. Arðurinn af sjávarauðlindinni hefur verið fluttur úr landi í stórum stíl, útrásarvíkingar þurrkuðu upp alla sjóði sem þeir komust í.

Að ógleymdu hinu íslenska okri sem er sérstakt fyrirbrigði; hvað fólkið í þessu landi – sem stundum þykist standa saman og vera saman á báti – er alveg samviskulaust með að okra hvað á öðru.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Guðfinna skrifar: Sáttamiðlun í fasteignamálum

Guðfinna skrifar: Sáttamiðlun í fasteignamálum
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum
Landráðamenn
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Báknið kjurt

Björn Jón skrifar: Báknið kjurt
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið