fbpx
Mánudagur 29.apríl 2024
Fréttir

Vilhjálmur: „Galið og þessu þarf að breyta eins og skot“ – Lífeyrissjóðirnir graftarkýli í íslensku samfélagi

Kristjón Kormákur Guðjónsson
Miðvikudaginn 18. október 2017 13:04

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Er þetta til hagsbóta?

Vilhjálmur: Hérna eru nokkur dæmi um eignir sjóðanna en þetta eru þrír stærstu eigendur í hverju félagi fyrir sig og halda menn að þessi eignarhlutur lífeyrissjóðanna sé virkilega til hagsbóta fyrir almenning í þessu landi?

Hagar1. Gildi lífeyrissjóður2. Lífeyrissjóður ríkis A deild3. Lífeyrissjóður verslunarmanna

Icelandair Group1. Lífeyrissjóður verslunarmanna2. Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins (LSR)3. Gildi lífeyrissjóður

Olíufélagið N11. Lífeyrissjóður verslunarmanna2. Gildi – lífeyrissjóður3. Lífeyrissj.starfsm.rík. A-deild

Tryggingarfélagið TM1. Lífeyrissjóður verslunarmanna2. Gildi – lífeyrissjóður3. Birta lífeyrissjóður

Tryggingarfélagið VÍS1. Lífeyrissjóður verslunarmanna2. Virðing safnreikningur3. Frjálsi lífeyrissjóðurinn

Vodafone1. Gildi lífeyrissjóður2. Lífeyrissjóður verslunarmanna3. Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins A deild

Síminn1. Lífeyrissjóður verslunarmanna2. Gildi lífeyrissjóður3. Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins A deild

„Það er morgunljóst í mínum huga að þau stjórnvöld sem taka við stjórnartaumunum eftir kosningar verða að láta það verða eitt af sínum fyrstu verkum að stinga rækilega á það graftarkýli sem íslensku lífeyrissjóðirnir eru í íslensku samfélagi.“

Þannig hefst pistill eftir Vilhjálm Birgisson verkalýðsleiðtoga á Pressunni. Þar hjólar Vilhjálmur í lífeyrissjóðina. Segir hann kerfið meingallað og illa rekið.

„Heildareignir lífeyrissjóðanna er 3738 milljarðar og þar af eru 2.882 milljarðar sem eru inn í íslensku hagkerfi. Eins og allir vita þá er ávöxtunarviðmið íslensku lífeyrissjóðirnir 3,5% raunávöxtun. Það er ljóst að þetta ávöxtunarviðmið er m.a. ástæðan fyrir því að við þurfum að búa hér við mjög hátt vaxtarstig og verðtryggingu.

Til að standa undir 3,5% raunávöxtun sem lífeyrissjóðirnir fara í raun fram á leiðir til þess að íslenskur almenningur, heimili og fyrirtæki þurfa að greiða yfir 100 milljarða á ári hverju til að standa undir þessu ávöxtunarviðmiði sjóðanna.“

Segir Vilhjálmur að sú upphæð sem þurfi til að fóðra ávöxtunarviðmið lífeyrissjóðanna sé litlu minni en aflaverðmæti allra íslenskra skipa árið 2016. Aflaverðmætið nam þá 133 milljörðum.

„Hvað vitglóra er í því að við séum með tæpa 3000 þúsund milljarða inn í íslensku hagkerfi sem leiðir til þess að vextir eru miklu hærri fyrir vikið og hlutabréfabólan þenst út eins enginn sé morgundagurinn vegna þess að sjóðirnir gera lítið annað en að kaupa og selja af hvorum öðrum.

Af hverju halda menn að norski olíusjóðurinn fjárfesti nánast eingöngu utan Noregs, nei snillingarnir sem stjórna lífeyrissjóðunum á Íslandi þeir eru ekkert að fara eftir Norðmönnum enda eru íslensku lífeyrissjóðirnir með 77% af heildareignum lífeyrissjóðanna til ávöxtunar í íslensku hagkerfi sem lendir á fullum þunga á íslenskum heimilum og fyrirtækjum til ávöxtunar. Galið og þessu þarf að breyta eins og skot.“

Vilhjálmur bætir við að íslensku lífeyrissjóðirnir sem sé stjórnað af Samtökum atvinnulífsins og verkalýðshreyfingunni eigi upp undir 50% af öllum hlutabréfum í Kauphöllinni.

„Þetta lífeyriskerfi sem þessir snillingar segja að sé best í heimi og kostar upp undir 14 milljarða að reka á ári og gerir lítið annað en að kaupa eignir fram og til baka af hvorum öðrum og þenja út hlutabréfabólu sem getur ekki annað en sprungið með hvelli. Þessi ráðandi eignarhlutir lífeyrissjóðanna í stærstu fyrirtækjum í Kauphöllinni gerir það að verkum að öll samkeppni verður nánast enginn!“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Barnaskólakennari drap manninn sinn og gróf líkið úti í garði

Barnaskólakennari drap manninn sinn og gróf líkið úti í garði
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Allt vitlaust út af brottrekstri Maríu Sigrúnar úr Kveik og kollegar grípa til varna – „Eru þau ömurlegu orð Ingólfi Bjarna til ævarandi minnkunar“

Allt vitlaust út af brottrekstri Maríu Sigrúnar úr Kveik og kollegar grípa til varna – „Eru þau ömurlegu orð Ingólfi Bjarna til ævarandi minnkunar“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Guðmundur Felix kastar inn handklæðinu

Guðmundur Felix kastar inn handklæðinu
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Viktor er óvænti forsetaframbjóðandinn: Safnaði 1.500 meðmælendum nánast í kyrrþey – Kostnaðurinn aðallega tími,bensín og sjoppusamlokur

Viktor er óvænti forsetaframbjóðandinn: Safnaði 1.500 meðmælendum nánast í kyrrþey – Kostnaðurinn aðallega tími,bensín og sjoppusamlokur