
Ég vek athygli á bloggsíðu Kristins Péturssonar, fyrrverandi alþingismanns og útgerðarmanns í Bakkafirði, þar sem hann skrifar athyglisverðar hugleiðingar um ýmis mál, aðallega fiskveiðistjórnun og vanda þjóðarbúsins.
Kristinn var þingmaður fyrir Sjálfstæðisflokkinn 1988-1991, en hann er þeirrar gerðar að hann rekst ekki vel í flokki, marsérar ekki alveg í takt.
Hann barðist lengi í fiskvinnslu á Bakkafirði, en varð á endanum að gefast upp eins og lesa má í þessari grein Jakobs F. Kristinssonar.