
Gunnar Tómasson hagfræðingur skrifaði þessa athugasemd við greinina Dóninn í Downingstræti.
— — —
Samkvæmt 1. gr. (i) stofnskrár Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) er hlutverk hans að efla samvinnu meðlimaríkja á sviði alþjóðapeningamála, og ber AGS að hafa það hlutverk að leiðarljósi í öllu starfi sínu:
Articles of Agreement of the International Monetary Fund
Article I – Purposes
The purposes of the International Monetary Fund are:
(i)
To promote international monetary cooperation through a permanent institution which provides the machinery for consultation and collaboration on international monetary problems.
(ii)
To facilitate the expansion and balanced growth of international trade, and to contribute thereby to the promotion and maintenance of high levels of employment and real income and to the development of the productive resources of all members as primary objectives of economic policy.
(iii)
To promote exchange stability, to maintain orderly exchange arrangements among members, and to avoid competitive exchange depreciation.
(iv)
To assist in the establishment of a multilateral system of payments in respect of current transactions between members and in the elimination of foreign exchange restrictions which hamper the growth of world trade.
(v)
To give confidence to members by making the general resources of the Fund temporarily available to them under adequate safeguards, thus providing them with opportunity to correct maladjustments in their balance of payments without resorting to measures destructive of national or international prosperity.
(vi)
In accordance with the above, to shorten the duration and lessen the degree of disequilibrium in the international balances of payments of members.
The Fund shall be guided in all its policies and decisions by the purposes set forth in this Article.
Lagalegur ágreiningur íslenzkra og brezkra stjórnvalda varðandi ICESAVE reikninga Landsbanka í Bretlandi fellur ekki undir valdsvið AGS.
Í orðum Gordon Brown í brezka þinginu – „Þessvegna erum við í viðræðum við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og önnur yfirvöld um hversu hratt Ísland mun borga til baka af því tjóni sem landið er ábyrgt fyrir.” – felst fullyrðing um rétta túlkun alþjóðalaga í þessu sambandi.
Ágreiningur er uppi meðal brezkra og íslenzkra lögfræðinga varðandi túlkun viðkomandi alþjóðalaga. Þann ágreining ber að leysa á vettvangi öðrum en Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.
Íslenzk stjórnvöld hljóta því að mótmæla harðlega við Dominique Strauss-Kahn, framkvæmdastjóra Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, að sl. haust og aftur núna virðist einhliða túlkun brezkra stjórnvalda á viðkomandi lagaákvæðum hindra heilshugar samvinnu AGS við Ísland á grundvelli stofnskrárákvæða Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.