fbpx
Sunnudagur 01.mars 2026
Eyjan

Viljum við þagnarsamsærið aftur?

Egill Helgason
Laugardaginn 2. maí 2009 16:11

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ég held að internetið hafi gert ómetanlegt gagn síðan íslenska efnahagskerfið hrundi.

Hvar hefðum við verið ef við hefðum bara haft hina hefðbundnu fjölmiðla?

Bloggið hefur verið vettvangur fyrir gagnrýna umræðu og upplýsingar, hugmyndaveita og skoðanaveita.

Nú stígur fram nýkjörinn þingmaður, Tryggvi Þór Herbertsson, og hefur uppi þung orð um bloggið vegna þess að í einhverju skúmaskoti þess hefur verið skrifað að hann sé ljótur og réttdræpur.

Hann talar um skrif á netinu sem hina „íslensku menningarbyltingu“.

Þetta er auðvitað ekki gott, en að dæma umræðuna á netinu ómerka vegna þessa er hræsnisfullt.

Sjálfur hef ég sjaldan hirt um að eltast við óhroða sem er skrifaður um mig á netinu, en nefni þó að um daginn skrifaði frambjóðandi til formanns í einum stjórnmálaflokkanna að réttast væri að taka mig af lífi – hann nefndi meira að segja aðferðina.

Ég tek fram að þessi maður myndi flokkast undir það sem kallast „kynlegir kvistir“.

Og marga pistlana og athugasemdirnar hef ég mátt lesa um útlit mitt, hárvöxt og líkamsþyngd!

Að ég tali ekki um þvæluna sem hefur birst um kaup mín og kjör – hluti sem eiga ekki neina stoð í raunveruleikanum.

Ég er hins vegar opinber persóna, hef mig mikið í frammi, og verð að reyna að taka þessu.

Til glöggvunar skoðaði ég athugasemdirnar um Tryggva sem hafa birst hér á vefnum. Ég hef áður sagt frá því að ég hika ekki við að taka út skrif sem ég tel óboðleg – og setja í bann mestu dónana. Það finnst mér alveg sjálfsagt.

Athugasemdirnar fjalla yfirleitt um aðkomu Tryggva að Mishkin-skýrslunni svökölluðu, störf hans hjá Askar Capital, stuttan feril hans sem efnahagsráðgjafi ríkisstjórnarinnar – og svo hugmyndir hans um skuldaniðurfellingu. Mestanpart er þetta málefnalegt.

Ég held ekki að ég vildi skipta og fara aftur í tímana fyrir hrun, þegar ríkti hér risastórt þagnarsamsæri.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar

Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Ráðning Bjarna rauð dula framan í verkalýðshreyfinguna – Á að breyta Samtökum atvinnulífsins í fjölskyldufyrirtæki Engeyinga?

Orðið á götunni: Ráðning Bjarna rauð dula framan í verkalýðshreyfinguna – Á að breyta Samtökum atvinnulífsins í fjölskyldufyrirtæki Engeyinga?
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Björn Jón skrifar: Báknið kjurt

Björn Jón skrifar: Báknið kjurt
Eyjan
Fyrir 1 viku

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: VÁ!

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: VÁ!
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að meðtaka eða meðtaka ekki veruleikann

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að meðtaka eða meðtaka ekki veruleikann