
Úr stefnuskrá Samfylkingarinnar, hún vill:
„Hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið strax eftir kosningar og bera samninginn undir þjóðaratkvæði. Setja í stjórnarskrá ákvæði sem heimilar að fullveldi sé deilt með yfirþjóðlegum stofnunum og alþjóðastofnunum samkvæmt ákvörðun Alþingis. Slík ákvörðun tekur því aðeins gildi að sé staðfest í þjóðaratkvæðagreiðslu.“
Og:
„Aðild að ESB er lýðræðismál og mikilvægasta velferðarmál þjóðarinnar. Eitt mikilvægasta verkefni næstu ríkisstjórnar er að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið og leggja samningsniðurstöðuna að þeim loknum í þjóðaratkvæðagreiðslu.“
Úr stefnuskrá VG:
„Hugsanlegur ávinningur af aðild Íslands að Evrópusambandinu réttlætir ekki frekara framsal á ákvörðunarrétti um málefni íslensku þjóðarinnar og er aðild að Evrópusambandinu því hafnað. Hagsmunir fjármagns og heimsfyrirtækja eru í alltof ríkum mæli drifkraftar Evrópusamrunans, miðstýring, skrifræði og skortur á lýðræði einkennir stofnanir þess um of.“