
Þessi tölvupóstur fer ljósum logum um netið.
— — —
Kæru fulltrúar þjóðarinnar,
Ég krefst þess að þingheimur og ríkisstjórn upplýsi nú þegar um:
– Skilyrði IMF lánsins (hvort nytjaréttur á auðlindum þjóðarinnar, leiga eða einhvers konar samningar varðandi þær séu endanlegt veð fyrir láninu – og ef svo er ekki, að við fáum rökstuðning fyrir því og útskýringu á því hvernig lánið sé þá tryggt).
– Hversu mikið hefur verið notað af IMF láninu og hvort það hafi virkilega reynst nauðsynlegt til að fá lán frá öðrum þjóðum (eða hvort það var drifið í gegn með hörku sterkra hagsmunaaðila hér á landi).
– Að þið, sem fulltrúar þjóðarinnar, munið ekki semja um skuldir þjóðarinnar, fyrr en vitað er hvort og hvernig við getum borgað þær. Þetta verður að liggja ljóst fyrir áður en samið er um skuldir.
– Að leitað verði allra leiða til að koma okkur undan stjórn IMF, að IMF leggi okkur ekki línurnar í ríkisrekstri, hvorki nú né nokkurn tímann.
– Að í ljósi undanfarinnar opinberunar, að stjórnmálaflokkarnir upplýsi þjóðina um hverja einustu krónu sem flokkarnir voru styrktir um frá þeim tíma sem einkavæðingaferli bankanna hófst, allt til dagsins í dag og upplýsi um framlög til allra frambjóðenda í prófkjörum. Þá er nauðsynlegt að rannsaka hvaða áhrif margnefndir styrkir höfðu á atbeina stjórnmálaflokka og stjórnmálafólks – þessi rannsókn þarf að sjálfsögðu að vera skipuð fagaðilum, erlendum og gæti Eva Joly bent á fólk til þeirra starfa (það kostar minna en styrkirnir hafa kostað þjóðina).
– Að ríkisstjórnin og þingheimur allur komi með alvöru lausnir á vanda heimila og einstaklinga, en lengi ekki bara í ólinni og láti almenning taka á sig allt fallið. Ennfremur, að ríkisstjórnin leiti álits og vinni með þeim hagsmunahópum sem um ræðir, í stað einhliða ákvarðanna (sbr. greiðslujöfnunar ,lausn” viðskiptaráðherra).
Kæru þingmenn og utanþingsráðherrar, það er öllum, ykkur og þjóðinni, nauðsynlegt að allt liggi fyrir til að grafa ekki undan trausti og til að alvöru uppbygging geti átt sér stað. Þegar öllu er á botninn hvolft, þá eru þið fulltrúar okkar og sem slíkir skuldið þið þjóðinni svör.