
Eitt sérkennilegasta útrásarfyrirtækið er Exista sem hefur dregið með sér í fallinu sparisjóði – og hugsanlega að einhverju leyti lífeyrissjóði líka.
Þetta félag hjarir enn á mörkum lífs og dauða.
Hér á bloggi Sigurbjörns Svavarssonar má finna forvitnileg skrif um Exista, Kaupþing og Bakkavör. Segir meðal annars:
„Það er eftirtektarvert að allir stærstu hluthafar og viðskiptamenn KAUPÞINGS eru í frjálsu falli. EXISTA, TCHENGUIZ, KJALAR. Allt veldi þeirra var byggt á sömu aðferðum og KAUPÞING, að velta áfram lánunum, hagnaður var byggður á pappírshagnaði í hver öðrum og um leið og tók fyrir ný lán þá féll spilaborgin.“